Mamma mamma,
mamma.
Amma, amma
amma.
Ekki eru á lífi
amma, afi né mamma ...
hana nú og hafiði það.
Þá er komið að úrslitum ljóðasamkeppninnar um lofljóð til handa ömmu minni. Mörg öndvegisskáldin létu ljós sitt skína og var sannarlega úr vöndu að velja. Eftir langa umhugsun og ráðgjöf frá ljóðunnendum og skáldum hefi ég komist að niðurstöðu.
Sigurvegarinn er......
Limbri
Ljóð hans þótti ná þeim heillandi persónuleika sem blessuð amma mín hefur upp á að bjóða án þess þó að grípa til óþarfa skrautgjálfurs. Hefðbundin uppsetning ljóðsins var framúrskarandi og taóísk einlægnin til fyrirmyndar og myndar frumlegt mótvægi gegn póstmódernísku ljóðasulli nútímans sem hefur ekkert upp á að bjóða annað en innihaldslausa sálareyðandi kaldhæðna sjálfshverfu.
Ég óska þér til hamingju Limbri og megir þú lengi dafna sem skáld.
hvert á hann að sækja verðlaunin, er hann búinn að ná í þau?
Alltaf er laumupúk jafn heillandi..
Sammála... skál !
já, það er oft frískandi að færa sig frá ys og skarkala nýjustu þráðanna. Oftar en ekki er líka ákaflega góðmennt á laumuþráðum.
er of seint, kannski en hvar sem er
Í leiknum þramma,
amma kann mig að skamma,
matreiðir gamma.