Sammála. Reyndar er alltaf hægt að hlusta á þennan óþverra ef ölvunarstigið er nógu hátt og fjölmennið nógu mikið, en auðvitað er betra að sleppa því bara.
Já, ég er reyndar líka sammála því. Virðingin fyrir eigin smekkvísi minnkar hratt eftir að komið er á kæruleysisstigið.
Ekki held ég að smekkurin fari úr þegar vínið kemur inn . Næir bara að nefna Einar Ben, Ernest Hemingway og mig sjálvan!
Minn punktur var sá að við aukna drykkju er manni sama þó maður þoli aðeins meiri "lágbrún". Hins vegar var ég ekki að segja að áhuginn á almennilegu efni minnki endilega.
Þegar þessir menn sem þú nefnir (fyrir utan þig) voru á lífi, var ekkert til sem hét Júróvisjón, Heimsins heimskustu bófar eða Ben Stiller. Þeir komu því ýmsu í verk þrátt fyrir drykkjuskap sinn - áreitið var minna. Þú ert hins vegar sértilfelli.