Aldurinn er aukaatriði hjer svo fremi að hjer sje gaman. Og aldursbilið er breitt hjer, frá 11-12 ára og upp í vjer vitum eigi hvað (yfir 50 svo vjer nefnum tölu sem vjer erum alveg vissir um að er eigi of há).
Og líklega er það eigi rjett er einhver hjer nefndi að flestir hjer hljóti að vera fæddir eftir 1980, a.m.k. grunar oss að það sje rangt hvað marga mjög virka gesti snertir. Það eru afar fáir gestir sem vjer vitum nákvæman aldur á en oss grunar að mjög gróft áætlað sje u.þ.b. helmingur gesta á fyrstu síðu yfir heimavarnarliðið kominn um eða yfir þrítugt (sbr. líka meðalaldurinn er Nornin nefndi í innleggi hjer framar). Er það líklega frekar óvenjuleg aldursdreifing Ljómar upp. Og svipað gildir líklega um síðu 2.
Ég er a.m.k. langt um yngri en það.
Hundinginn held ég að sé tuttugu vetra.
Ég sjálfur er auðvitað huggulegt karleintak á besta aldri (16?) og hundinginn er um fertugt - - - - ekki satt?
Hvernig lítur listinn út?
Ég veit hvað Vamban er gamall!xT
Það er samt bannað að kjafta!
Ég myndi ekki þola reiði þeirra Bagglýtinga sem ég veit aldurinn á.
fölnar upp
Ég er þögull sem gröfin. Setur límband fyrir munninn og hausinn í poka
Við öðru var nú ekki að búast af þér elskan.
Málar rauðar varir á límbandið og trúðanef á hauspokann
Haha! Ég veit líka hvað Vamban er gamall - en segi ekki neitt - en hvar er Vamban annars?
Baggalútur er fyrsta íslenska netsamfélagið sem ég hef tilheyrt og það eina af þeim sem ekki gerir aldur skráningarskyldan við inngöngu...
Sem er reyndar ágætt því sumir hafa ákveðna aldursfordóma gagnvart sér yngra fólki á meðan aðrir hafa fordóma gagnvart sér eldra fólki.
Hér eru hins vegar allir jafn aldurslausir Brosir laumulega og lítur út um gluggann
Aldur líkamans skiptir ekki máli, tel ég.
Ég fæddist fjörgömul.
Reyndar held ég að ég sé bæði gömul og ung... get framkallað hinn argasta fíflagang stundum...
Satt að segja er ég ekki lengur viss með aldur minn, geimferðir og tímaflakk á það til að hafa þessi áhrif.
Ég tel að ég sé á það hlutlausum aldri að mér hafi alveg verið óhætt að gefa upp aldurinn. Ég er næstum því unglamb og ekki alveg fullorðinn. Afar hress aldur.
-
Kæri konungur
Mikið ertu nú sexý eftir að sígarettan er aftur komin í munnvikið - bara allt annað að sjá þig og gat ekki orða bundist!
Ég tel að ég sé á það hlutlausum aldri að mér hafi alveg verið óhætt að gefa upp aldurinn. Ég er næstum því unglamb og ekki alveg fullorðinn. Afar hress aldur.
Við erum greinilega á besta aldri sem völ er á Gefur frá sér vellíðunarstunu
Kæri konungur
Mikið ertu nú sexý eftir að sígarettan er aftur komin í munnvikið - bara allt annað að sjá þig og gat ekki orða bundist!
Ertu viss um að um konunginn sé að ræða?
Hakuchi eða Hakuhci To be or not to be, that is the.............