Hafa menn einhver háleit plön í sumar?
Fyrir utan að þurfa að vinna nokkuð mikið, þá hef ég hugsað mér að ganga á nokkur fjöll í sumar, ekki ákveðið hvaða fjöll en flestir mínir frídagar munu fara í slíkt ef mögulegt verður.
Ég fer ekki í unglingavinnuna, skítapeningur, en ég mun líklega vinna við heimasíðu pabba míns, sem á fyrirtækið Rafstillingu ehf, og svo verður væntanlega farið í gommu af ferðum út á land í húsbílnum.
Ég verð að vinna í að gera fokhelt hús boðlegt fjölskyldu minni. Þótt ég verði klárlega ekki aðalmaðurinn í því er ég ráðinn til þess að hjálpa. Flestir frítímar mínir munusennalegast fara í sóprantvíblöðunginn og fleiri minni áhugamál.
Ég er eins og venjulega með mikið af háleitum plönum fyrir sumarið. Reyndar vill vinnan oft éta upp allan frítímann, en ég stefni á: a.m.k eina Rokkhátíð, margar og mismunandi langar hjólaferðir, göngu á +4000m tind og heimsókn til Íslands.
Ég geng oft á fjöll... minnsta lagi þrisvar í viku. Maður telst ekki alvöru karlmaður fyrr en maður stundar þannig teflingu við páfann!
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Gengurðu semsagt örna þinna á fjöll þá? Hrökklast aftur á bak og stígur í eitthvað
Þú ættir að finna fýluna sem læðist gegnum merg og bein og drepur alla ernina sem fljúga framhjá mér uppá fjallstoppinum.
Ljómar upp og ímyndar sér þetta með bros á vör
Ég ætla að reyna að finna villinginn í mér. Áætlað er að drekka meira en góðu hófi gegnir og helst að vera settur í handjárn minnst einu sinni (af lögreglu). Þá ætla ég að kíkja á Roskilde og vonandi krækja mér í einhver sár og sjúkdóma. Stefni ég á að verða ælumeistari í mínum þyngdarflokk, ég mun að öllum líkindum éta pylsur og annað góðmeti sem lítur vel út í æluformi. Að endingu ætla ég að fá magasár úr stressi vegna fjármála og almennra lífsgæðaatriða.
Stefnir í gott sumar.
-
Mig langar á Roskilde...
Ég ætla að vinna aðra hverja viku og nýta hinar vikurnar í ferðalög um landið.
Hyggst fara á Hornstrandir og gista í Hornbjargsvita í nokkrar nætur, ganga um svæðið og njóta náttúrunnar.
Svo er ég að spá í að fara í "húspössun" í Óðinsvéum í sumar í heila viku Ljómar upp.
Í enda sumars mun ég að öllum líkindum flytja, annað hvort til Akureyrar eða Glasgow.
1. Tónleikar með Iron Maiden Í Júní
2. Viku frí í Þýskalandi með dóttir minni í Júli
3. Tveggja vikna frí með dóttir minni í Ágúst. Líklega að hluta til á Akureyri
4. ...Reyna að komast í smá aukavinnu til að halda lausafjárstöðunni betri.
5. Ganga á á örfá smáfjöll og einnig á Hekluna.
Annað er ekki planað í bili, hver veit hvað gæti bæst við.
Svo er að sjálfsögðu hellings skytterí með haustinu...
Ljómar upp
Í enda sumars mun ég að öllum líkindum flytja, annað hvort til Akureyrar eða Glasgow.
Ekki þó frá Baggalútíu? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Í enda sumars mun ég að öllum líkindum flytja, annað hvort til Akureyrar eða Glasgow.
Ekki þó frá Baggalútíu? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvað er í Glasskó?
Í enda sumars mun ég að öllum líkindum flytja, annað hvort til Akureyrar eða Glasgow.
Ég mæli með Glasgow, ég bjó þar einu sinni og skemmti mér vel fær nostalgíukast
Í enda sumars mun ég að öllum líkindum flytja, annað hvort til Akureyrar eða Glasgow.
Ekki þó frá Baggalútíu? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvað er í Glasskó?
Nú, Taggart.
Ég ætla nú bara að vera á suðvesturhorni Íslands, svona mestmegnis. Ég hef heyrt því fleygt að hér verði gott veður, svo ég ætla bara að liggja í sólbaði og vökva garðinn. Hugsanlegt er að ég úði svolitlu á mig líka. Brosir af tilhlökkun