Allir þessir ólesnu þræðir. svimar Ég sé ekki skóginn fyrir trjánum.
Nennir einhver að gefa mér stutt yfirlit yfir það sem gerðist meðan ég var í burtu, svona síðurstu tvær eða þrjár vikur held ég. Það virkaði a.m.k. svo langt Glottir eins og fífl.
Það verður erfitt! Það þyrfti að koma einhverju þráðaeinkunnakerfi hér upp. Nær ómögulegt er að grúska í þessu þó ekki hafi liðið nema 4-5 dagar. Ég var einmitt í þeirri erfiðu stöðu nýlega og þú mátt trúa því að ég öfunda þig ekki af hlutskipti þínu.
Ég hef misst af síðustu þremur vikum... ég þarf sálfræðiaðstoð eftir þennan lestur!
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Stærstu tíðindin í vorum huga er hve margir gestir virðast hafa sogast ofan í dvergsvartholið í klósetti Skabba (sjá http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5394 og http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5462 í Vísindaakademíunni). Er það oss ljettir að Jeg Sjálfur skuli eigi líka hafa lent í þessu illvíga svartholi (og sama á við um fleiri gesti er skyndilega hafa verið að birtast á ný, t.d. krumpu).