Það væri eiginlega sniðugt að gefa út reglulegt fréttabréf hér... eða hvað lítur flóttalega í kringum sig, lyftir jakkakraganum, gerist laumupokalegur og fer
Er ekki hægt að endurvekja dagblaðsnafnið NT?
Það væri eiginlega sniðugt að gefa út reglulegt fréttabréf hér... eða hvað lítur flóttalega í kringum sig, lyftir jakkakraganum, gerist laumupokalegur og fer
Sendir ritstjórn einkapóst
Mér datt einhvern tímann í hug að skrifa baggalútískar fréttir slíkt í stíl ritstjórnar, en nennti aldrei að koma því í verk.
Það sem Baggalútískt fréttabréf væri: Fréttir úr Baggalútíu en ekki úr raunheimum líkt og ritstjórn gerir.
Ég meina að Baggalútíutíðindi myndu þjóna hlutverki eins konar héraðsfréttablaðs en Ritstjórnin sjá um að bera okkur fréttir úr hinum stóra heimi.
Hefur einhver heyrt eitthvað meira um það blað en það sem komið er í fréttum? Ég heyrði að það væri búið að ráða blaðamenn, auglýsingasölumenn og umbrotsfólk. Mér fannst fara eitthvað lítið fyrir auglýsingum varðandi umbrotið og því hugsanlegt að ekki séu fagmenn á ferð eða að þeir hefi stolið fólki frá hinum dagblöðunum. Alla vega sem fagmaður í umbroti og hönnun þá finnst mér það frekar skuggaleg þróun. Og meðan ég man, veit einhver um vinnu fyrir prentmið / hönnuð? Ég er nefnilega að brjálast á því að keyra strætó!
Blaðið samanstendur af þeim fyrrverandi frétta, auglýsinga og starfs-mönnum stöðvar tvö sem hafa verið reknir eða sagt upp störfum sínum vegna óráðsíu og upplausnar nú síðasta árið. Svo segir Gróa á Leiti í það minnsta.
Ég tala ekki um það er það er svo staðfest af ólyngum örlygssyni
Mér finst þetta það tilgangslausasta blað sem ég hef nokkru sinni lesið
Mér finnst núna Rúmfatalagersblaðið allt í einu spennandi... Starir þegjandi út í loftið
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið