Var að glápa á Gísla Martein spjalla við Ólaf Jóhann og það fer svolítið í taugarnar á manni þetta þvingaða "grettubros" á Ólafi og er engu líkara en hann finni einhverja skítalykt í sömu mund og hann notar broskirtlana.
En, þetta er alls ekki það sem ég ætlaði að tala um. Í viðtalinu var verið að fjalla um nýjustu bók Ólafs, "Sakleysingjarnir, en fyrirmynd eins karaktersins í bókinni er maður sem mig minnir að þeir hafi nefnt Norman Lincoln Rockwell og sá hafi verið í forsvari fyrir bandaríska nasista á sjötta áratug síðustu aldar og að þessi maður hafi átt íslenska konu sem bjó við mikla örbirgð eftir að bóndi hennar dó.
Maður hefur farið sem eldibrandur um Netið og reynt að afla sér upplýsinga um téðan Rockwell og bandaríska nasista, en ekki fundið stafkrók um slíkt, en þekkir einhver notandi hér þetta mál betur?
Ég veit hinsvegar að einhver frægasti málari hét Norman Rockwell, en ég held að hann tengist þessu máli ekki neitt, en annars veit maður aldrei eða hvað...?
Ekki veit ég hver þessi Rockwell er. Hins vega á ég mynd eftir málarann Rockvell, sem hann málaði af föðurómynd minni, afa og hálfbróður.
Ég veit ekkert þú verður bara að hringja í Ólaf.
Hvernig er það með þessa amerísku nazista? Eru þeir jafn harðir og vinir þeirra í þýskalandi? Eða erum við að tala um að þeir séu harðari? Annars er ég ekki mikið fyrir svona seinniheimstyrjaldartal, hefur aldrei neitt nema væl í för með sér. Tannsi er harðari en svona nazista ræflar.
Ætli hann tengist nokkuð listamanninum Rockwell sem söng lagið "Somebody's watching me" á 9. áratugnum?
Bandaríkjamenn voru margir hverjir heitir fyrir málstað nasista. Þar má meðal annars nefna karla á borð við Henry Ford og Charles Lindberg. Á síðari árum hafa einnig verið dregin fram í dagsljósið hin og þessi viðskiptatengsl milli Bandaríkjanna og Þriðja ríkis Hitlers.
Gamli pabbi Kennedy!