Svartsýni mín hefur mörgum sinnu verið að drepa mig. Ég bölva granna mínum fyrir fallegu sólberin hans í staðin fyryr að vera hreykin af njólum mínum. Ég hræki á reikningana í póstkassanum í staðin fyrir að hugsa : gaman að einhver man eftir mér. Eg hata rigninguna í staðin fyrir að elska sólina. Nú er ég farin að hugsa öðruvísi. Whisky flaskan er ekki lengur hálftóm heldur hálffull! Hvað hugsið þið þegar krakkarnir grenja, síminn er lokaður og Davíð Oddson er í sjónvarpinu?
Æ æ. Nú get ég ekki hringt í Vinalínuna.
Æ æ. Nú get ég ekki hringt í Vinalínuna.
Jákvæða ég hefði heldur hugsað krakkarnir eru á lífi! helvítið hún Gunna getur ekki hringt okkur! og Guði sé lov að Hemmi Gunn sé ekki á skjánum
Skál?
opnar flösku og drekkur úr henni þar til hún er hálf full SKÁL!
Við viljum ekki svona bjarstsýni það lætur okkur líta illa út.
Gaman að sjá framför GEH hvað viðkemur stafsetningu og málfræði. Nú skrifar hann ekki nánast ómögulega heldur um það bil ágætlega.
Ég hef aldrei átt hálftómt glas, ég teyga alltaf í botn.
-
Svartsýni mín hefur mörgum sinnu verið að drepa mig. Ég bölva granna mínum fyrir fallegu sólberin hans í staðin fyryr að vera hreykin af njólum mínum. Ég hræki á reikningana í póstkassanum í staðin fyrir að hugsa : gaman að einhver man eftir mér. Eg hata rigninguna í staðin fyrir að elska sólina. Nú er ég farin að hugsa öðruvísi. Whisky flaskan er ekki lengur hálftóm heldur hálffull! Hvað hugsið þið þegar krakkarnir grenja, síminn er lokaður og Davíð Oddson er í sjónvarpinu?
Þegar krakkarnir grenja þá grenja ég líka og opna bjór.
Síminn minn er aldrei lokaður því ég á svo mikið af peningum og Davíd er ég svo oft og lengi búin að blóta að ég get ekki meira.
Hvað hugsið þið þegar krakkarnir grenja, síminn er lokaður og Davíð Oddson er í sjónvarpinu?
Ef hann er í settinu hjá Flissa, sjónvarpsmanninum síkáta, þá varpa ég sjóvarpinu út um svalahurðina. Það er nefnt að útvarpa sjónvarpinu á mínu heimili og þykir kostnaðarsamt. Ef hann er aftur á móti í viðtali hjá hinni kunnu sjónvarpskonu Elenínu Hið Yrst, þá slekk ég einfaldlega á sjónvarpinu, það er ódýrara. Nóg eru nú samt afnotagjöldin, sem nú á að fara að borga með nefinu.
Nei, sko ef flaskan er hálftóm, þá hellir maður bara úr henni í minna glas. Þá er glasið orðið fullt og engin ástæða til að sýta lengur. Svo hendir maður krökkunum í pössun, hendir símanum í ruslið og bananahýði í sjónvarpið (svona rétt til að árétta bananalýðveldisstuðul ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar), slekkur svo á sjónvarpinu og kveikir á tölvunni.
Málið leyst Gísli minn! Uh... ég meina Eiríkur minn... Æ, þú veist hvað ég meina...
Fylla flöskuna með bleksterku kaffi. Það kemur restini í lag líka. Fara svo út og snara sér eins og eina belju fyrir morgunmat. Hressir, kætir og bætir.