Hlandbert varð því forviða þegar flugmaðurinn opnaði dyrnar. Ekki vegna þess að honum hafi brugðið við það heldur það að þar var kominn bróðir hans, Hlandþór. Hlandþór hafði getið sér gott orð í Belgíu við að leika styttu sem á máli þarlendra kallast Manneke Pis. Það urðu fagnaðarfundir með Hlandberti og Hlandþór og var það einstaklega
skemmtilegt að sjá að þeir gátu enn drukkið saman séniver án þess að kasta upp. Flugfreyjurnar báru í þá mikið af slíkum veigum, þar sem þeir lugu því að þeir ættu báðir afmæli.
En það sem flugfreyjurnar vissu ekki var það að hinn flugmaðurinn var með svefnsýki á háu stigi og það var vonlaust að vekja hann. Það var þriðji bróðirinn, Hlandmundur. Hlandbert og Hlandþór sátu nú að sumbli án þess að gera sér grein fyrir því að Hlandþór þyrfti að lenda vélinni fljótlega. Það var
þeim til happs að systir þeirra, Hlandlaug, var ein af flugfreyjunum og áttaði sig fljótlega að það vantaði regnhlífar í drykkina sem þeir..
voru að hella í sig. Hún fór því fram í stjórnklefann til að ná í þær, og sá að Hlandmundur var sofandi við stýrið.
Hlandlaug vissi sem var að eina lyfið sem virkaði gegn svefnsýki var amfetamín. Skelfingu lostin þreif hún upp dyrnar og öskraði Mig vantar amfetamín fyrir flugstjórann, annars eruð þið öll dauð! Nú varð
allt vitlaust í vélinni þangað til að Pedro Fernandez, kólumbískur eiturlyfjabarón, opnaði tösku sína og dró upp
sprautu með hreinu kaffibaunadufti og sprautaði Hlandmund með vænum skammti. Við þetta...
hrökk Hlandmundur upp og flaug þrjá hringi í kringum hnöttinn áður en hann lenti svo...
á Kolbeinsey. Það merkilega var að flugvélin gat alveg lent þarna því...
til Svalbarða í stríðið gegn Keiko sem Bandaríkjamenn höfðu nú grunaðan um að vera sprelllifandi, vel útbúinn vopnum frá Osamabin Laden.
Kapteinn flugmóðurskipsins hét Heródes McMillan, en hann var einmitt nýbúinn að
girða sig vel og vandlega áður en hann ætlaði að stíga út úr vélinni, en þegar hann var að fara í jakkann sinn heyrðist....
óhugnanlegt rifhljóð. Heródes öskraði uppyfir sig :
"Hoffenlúff ma sörbok lop le húgg!" sem þýðir..
„Úff! Örblogg Úlla 'Pes' Hoffhenmokk“, en Úlli hafði einmitt spáð fyrir um rifhljóðið á örbloggsíðu sinni fyrr um daginn.
Heródes fór úr jakkanum og sá að hann var rifinn til hálfs að aftan. Ekki gett þetta nú. Hann andvarpaði mæðulega og