En það gæti nú verið verra, t.d. ef ég væri í enn bjartari lit!
Mér líka.
Þetta bros og starandi augnaráð nísta merg og bein. Og ekki bætir þessi bjarti litur úr skák.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er... þú ert óborganlegur...
Hryllir sig
Svona bjartsýni ætti að vera bönnuð með lögum...
Það er satt. Eitthvað verðum við að gera.
Ég tek undir þetta og mæli með tjöru og fiðri. Þessi Pollýanna er alger hryllingur.
Grípur atgerinn og syngur hátt í honum (atgeirnum þ.e.)
Þakka þér fyrir það Skabbi minn. Þú ert öðlingur.
Nei hann er kuðungur.
Ég hef þannigséð ekkert á móti Pollýönnu sem persónu en það er bara myndin sem gerir mig sturlaðan.
Veltir fyrir sér hvort hann ætti að skora á Pollýönnu í störukeppni.
Henni er starsýnt á mann - en gæti verið meira starsýnt á mann...
Engum er meira starsýnt á menn en Berserkur. Þessi einlægi störusvipur er kostulegur. Hins vegar er svipurinn langt frá því að fera pirrandi, því er öfugt farið ef eitthvað er.
Ég er svolítið sammála varðandi Pollýönnu. Það er eitthvað við svipinn...
Það merkilega við þetta er að nú er ég sammála.
Eina myndin sem fer í pirrurnar á mér.
Það er eitthvað falst við þetta glott.
kokkur? Getur verið að við þekkjumst?
Heitiru nokkuð Bjarki?
Fyrirgefðu Hlolmes hvað ég svara seint en af einhverjum ástæðum hefur þessi fyrirspurn farið fram hjá mér og ég var að rekast á hana núna.
Nei ég heiti ekki Bjarki en af hverju heldurðu það?
Annars vil ég benda á að það er ekki víst að sumir mundu vilja gangast við því að vera uppljóstraðir hér og þá er betra í svona tilfelli að senda einkapóst.

Núna eftir sumarfrí man ég nú ekki neitt af hverju ég hélt þú hétir Bjarki, en það hefur vafalaust verið mjög góð ástæða fyrst mér datt þetta í hug.
Já, og takk fyrir að minna mig á einkapóstinn. Hann hefur alveg steingleymst þarna.
Munið að rukka hr. pirrandi!