Hér er ég að hugsa um að stofna þráð með ofstuðlunarvísum. Ég skelli fram fyrriparti fyrir einhvern að botna og sá verður að snara fram öðrum fyrriparti til að halda keðjunni gangandi.
Gimlé gengur glaður ganginn
greddan glepur gaurinn
Gimlé gengur glaður ganginn
greddan glepur gaurinn
engu eirir aumur anginn
óður étur eðju-aurinn
Bólgnum belli Baugabrún
býður blauta barma
Bólgnum belli Baugabrún
býður blauta barma.
Einnig endar eðlan allt.
Ef ekki eflist aurinn.
Pottormurinn pakkaði pent
píndi oss partlaus púkinn.
Barlómurinn blót svo og bent
á blásvartann barða búkinn
Ekki laust við að þessi þráður ofbjóði fegurðarskyninu, en samt... og úr því Skabbi skildi heldur ekki eftir fyrripart:
Skepnan Skabbi skaust í skjól
og skild'eftir skort af skáldaskammti
Skepnan Skabbi skaust í skjól
og skild'eftir skort af skáldaskammti
Kynjólfur sig klæddi í kjól
klofvega á klári karlinn krammti
Kynjólfur með klofið klof
kenndur kneyfar kostinn
Kynjólfur með klofið klof
kenndur kneyfar kostinn
Signarr sjálfan sig í sof
sæll sér súlfatostinn
Ofstuðlun er allra ást
öngvum elur æru