Costa del sol hefur nú verið sigruð og verður staðurinn notaður sem afslöppunarnýlenda fyrir ráðherra og aðra háttsetta menn í Baggalútíu.
Það má segja að innlimun þessarar nýlendu í heimsveldið Baggalútíuhafi gerst fyrir tilviljun. Svo virðist sem dauðakindur Dr. Zoidbergs hafi smíðað sér pramma, siglt þangað og sigrað landið í nafni Baggalútíu.
Dr. Zoidberg, þú færð viðurkenningu fyrir að hafa skapað afbragðsgáfaðar kindur. Neglir viðurkenningu á skelina hans Zoidbergs
Það er allt gott og blessað en það er ekki þverfótað fyrir rolluskjátunum hans Dr. Zoidbergs hérna á börunum og á baðströndinni. Eitt er að gera þær hernaðarlega súperíör en þetta er komið út í tóma vitleysu! Un servesa por favor, yes here plís nó Æ vas here before that sheep, NO JÚ shut up! ú dúm rollan þín, dú jú nó hú æ em, Æ em the Præmminister skilur ekkert afhverju hann var að tala ensku við rollur Zoidbergs og er troðinn niður af tveimur dauðadrukknum hrútum áður en ráðrúm gefst til að snara þessu yfir á Baggalútísku
mætir á staðinn í landbúnaðarráðherrabúningnum sínum KINDUR! Í RÉTTSTÖÐU! kindurnar raða sér upp og hreyfa ekki litlahófa
ÉÉÉG VIL... að ráðamönnum Baggalútíu sé sýnd VIRÐING! kindurnar kinka kolli
DISMISSED!
Gott á ykkur þarna siðblindu ráðherradjöflar
Hringir í kindur Zoidberg og biður um aðstoð við að losna við þessa leiðindaráðherra af ströndinni
vertu nú ekki of bjartsýnn Grimmis,kindurnar eru forritaðar þannig að þær hlýða aðeins skipunum frá mér eða Zoidberg.
Kátt er nú á Kostasól
kindurnar farnar burt.
Og botnið nú!
Kátt er nú á Kostasól
kindurnar farnar burt.
Í Grimmis ætíð bölvað gól
Með gel í hárið þurrt
mætir á staðinn í landbúnaðarráðherrabúningnum sínum KINDUR! Í RÉTTSTÖÐU! kindurnar raða sér upp og hreyfa ekki litlahófa
ÉÉÉG VIL... að ráðamönnum Baggalútíu sé sýnd VIRÐING! kindurnar kinka kolli
DISMISSED!
Eru þessar kindur erfðabreyttar? Hreyfa ekki litlahófa hvað?
hreyfa ekki klauf þá. Þú ætlast þó ekki til að þær séu með fingur.
Eru þessar kindur erfðabreyttar? Hreyfa ekki litlahófa hvað?
Hvað gengur að þessum feministum, þurfa þeir ætíð að skjóta sig margsinnis í sömu löppina? Eins gott að þeir vinna ekki í nefndamálaráðuneytinu, þá myndi öll pappírsvinna klárast og heimurinn eins og við þekkjum hann líða undir lök, þó ekki Baggalútía, hún er eilíf...
Ályktun skyndinefndar:
Það mætti nú alveg gefa þeim fingur, en þá verður að passa að þær fái ekki gagnverkandi þumalfingur. Það myndi setja þessa nautheimsku og mállausu sauði á sama stall og alþýða Baggalútíu er í dag og þá gætu þeir farið að krefjast "réttinda", eða hvernig sem þessi tískuorð öll hljóma nú til dags.
Ég mæli með því að öllum kröfum um réttindi verði sendar inná borð til mín ef þær eru farnar að íþyngja ráðamönnum. Bjúrókratisminn mun sýna almenningi að réttur þeirra vegur minna heldur en skriffinnskan ræður við.
Bölvaðar réttindakröfur. Um að gera að drekkja þeim í pappírsflóði.
Alveg rétt. Mat á algerri drukknun er 1/102983878987
Drukknun er tryggð með pappírsflóði og tryggingin engin.
Yndislegt. Og hvenær á svo að hefjast handa?
Hvenær??? Ég er alltaf að störfum Ráðherra góður, klukkan er fimm og ég fer aldrei heim. . .
Hvað gengur að þessum feministum......................
Það er sjálfsagt misjafnt eftir feministum, í mínu tilfelli er það... Starir þegjandi út í loftið æ, ég man það ekki lengur.
Já, farin í vínið sé ég. Enda mun skemmtilegri fyrir vikið.