Í tilefni af því að sumarið er komið þá bað ég Enter um að skella nýrri mynd af mér hingað inn. Sem hann og gerði og vil ég þakka honum fyrir það. Ástæðan fyrir því að ég er að skipta um mynd er sú að mig langaði að flikka upp á mig og sýna það að ég hef hugsað mér að verða alvarlegri í sumar en hingað til.
Sæki ég auk þess um stöðu Yfir-Marsláks og herforingja í Konungsríkinu.
Vel heppnuð myndaskipti hjá þér. Mjög flott mynd.
Já miklu betri þessi. Nú geta Undirheimar teygt völd sín á heimshöfin líka.
Mjög fín mynd já. En er sumarið ekki hefðbundinn tími glaums og kæruleysis? Jæja, þú mátt auðvitað haga þessu eins og þig lystir.