viss-sjón, sýn þ.e.a.s.
Skrabbi nefndur Skrumari
af skefjalausu netflippi
hélt sig verða hrumari
hollt því aðeins frá skrippi
afvötnunar stutt var stopp
stakk af fljótur hvítan slopp
í Baggalútsins hí! og hopp!
henti sér sem springi popp
aftur góðan hittum hrapp
hann þá burt af stofnun slapp
og fráleitt klæðist flík úr Gap
fagna mun og gefa klapp!
Skrabbi nefndur Skrumari
af skefjalausu netflippi
hélt sig verða hrumari
hollt því aðeins frá skrippi
afvötnunar stutt var stopp
stakk af fljótur hvítan slopp
í Baggalútsins hí! og hopp!
henti sér sem springi popp
aftur góðan hittum hrapp
hann þá burt af stofnun slapp
og fráleitt klæðist flík úr Gap
fagna mun og gefa klapp!
skelfileg afvötnun Skrabba
skyndilega hann strax þurrkaði
lífið úr lútnum murkaði
lítið var þá um að rabba
afnetun okkur reyndist afar illa
afneitun Skrabba gagnvart oss var villa
Kominn er ég allur heim
alldrei netið stútum
Internetið náum þeim
nösku baggalútum
Velkominn Skabbi Skrum
skínandi afvatnaður
Blómgist nú kvabbsins brum
bullaðu glaður maður