Kæru vinir og vandamenn.
Það hefur ekki farið framhjá mér undafarna daga hérna á spjallinu að sumir hérna eru ráðherrar, keisarar eða ráðuneyti.
Má ég gefa mér það Bessaleyfi að krýna mig umhverfisráðherra baggalútíu?
p.s. ætla bara líta hvernig þetta kemur út
Taktu þér heldur Bessaleyfi, það er smekklegra.
Velkomin(n) til starfa.
Takk Júlía. Þú ert yndisleg.
Stekkur hæð sína
Ég er nú ekki viss um að Gleðigantur umhverfisráðherra verði sáttur við að þú verðir umhverfisráðherra. Þú verður að ræða við hann um þetta.
Gæti plebbin ekki orðið umhverfisráðskona? Annars hefur Gleðigantur lítið sést undanfarið...eru miklar annir í ráðuneytinu?
Það er reyndar rétt. Gleðigantur hefur ekkert sést lengi. Vel má velta sér fyrir að reka hann fyrir lélega mætingu. Umhverfisráðherra ætti að hafa í nógu að snúast við að taka á móti mútum frá iðnjöfrum sem vilja virkja landsins gang og nauðsynjar.
Já, rekum Gleðigant og fáum plebba í staðinn. Og ef þú tekur ekki við mútum þá sniðgöngum við þig bara.
Já, rekum Gleðigant og fáum plebba í staðinn. Og ef þú tekur ekki við mútum þá sniðgöngum við þig bara.
Birtist blindfullur Og þú verður að dansa nakin afríkanskan stríðdans, syngjandi "Heims um ból" afturábak sem hluta af vígslunni í ráðherraembættið Dettur um stól og sofnar
Æi ég vil ekki vera taka þetta sæti frá Gleðiganti, æ þá vík ég bara úr sæti ef hann kemur aftur.
Dansar afrískan stríðdans, nakin
Lá myrkrunum í meinvill
Mannkind gjörvöll en, ljóssins frumglæði
Lind, frelsisins mannanna, frelsun
Ól, Guðs son mær signuð
Jól, eru helg, ból um Heims
Bravó! En þú mátt í framtíðinni sleppa því að taka við fyrirmælum frá Nykri. Allaveganna ef hann er fullur.
Ég held að ég fari að ráðum þínum með það Blástakkur
Úps, gleymdi mér aðeins í þessu teiti.
urrg....þetta er teiti án mín....vott a halæri......huh, það á að bjóða pípoli einsog mér á svonalagað...því að annars er þetta ekki teiti...
fer úr að ofan,stekkur upp á borð og fer að syngja
Fer úr að neðan og stekkur uppá barborðið, dansar kósakkadans og syngur lagið um Jón spæjó.