Hvar má nálgast fréttirnar sem Gestapóar lögðu inn sjálfir vegna 2000. og 1000. fréttarinnar á Baggalúti?
Ég held að Bagglýtingar hafi ekki skrifað mikið fleiri fréttir en þetta, það skýrir af hverju það voru 11 en ekki 10 efstu fréttirnar birtar árið 2003.
Ég sendi inn frétt, en held að ég sé löngu búinn að henda henni... enda var hún of léleg til að verða valin...
Ég asnaðist til að gleyma að taka afrit af fréttinni sem ég sendi inn núna...
Ég asnaðist til að gleyma að taka afrit af fréttinni sem ég sendi inn núna...
Við lesum hana bara þegar hún verður birt sem sigurfréttin.
-
Nei Limbri - eitthvað hefur þú misskilið. Það er mín frétt sem verður valin sem sigurfréttin. Enda hafði ég ekkert fyrir því að taka afrit af henni.
Þarfi: Ég segi nú bara eins og Jóakim Aðalönd - ÖSSS
Gaman væri að sjá tölfræði um fjölda innsedra frétta. Starir þegjandi út í loftið
Veitt höfum vjer því athygli að frjettirnar hafa núna verið birtar. Einnig tilkynnist hjer með opinberlega að eigi sendum vjer inn frjett vegna hættu á að ljóstra með því upp um einhver ríkisleyndarmál er eigi kemur í ljós fyrr en í framtíðinni að þurfi að halda leyndum.
Til hamingju öll sömul. Þið eigið sko öll skilið að tapa. Nema kannski þeir örfáu sem unnu. (Varla efist þið um dómgreind Ritstjórnar)
-
Ég efast alls ekki um fréttamat ritstjórnar, enda í einu af efstu 11 sætunum.
Össs...
Alveg er ég viss um að Ingibjörg er einhver af ritstjórnarmeðlimum. Hún hefur ekki einu sinni fyrir því að prófarkalesa og innsláttarvillur eiga ekki að sjást í sigurfrétt. Heimur versnandi fer. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Því má bæta við að Kynjólfur hefur aldeilis húmorinn í lagi og hann á svo sannarlega skilið að fá heiðursverðlaun. Stekkur hæð sína
Fréttin mín var ekki einusinni birt. Ég tel verulega þörf á að ráða níjann fréttastjóra á ritstjórn. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Össs...
Ritskoðun hjá þessari ritsjórn nær út fyrir allan þjófabálk.