Heyrst hefur að ég hafi verið fjarverandi í þónokkurn tíma. Einnig hefur heyrst að enginn hafi saknað mín. Brestur í óstöðvandi grát
Heyrst hefur að allir hérna hafi saknað Helenu fögru...
Heyrst hefur að nokkuð margir Bagglýtingar kunni þá list að bera söknuð í hljóði (sbr. fyrri atburði af svipaðri tegund).
Veltir fyrir sjer hversu mörgum þeirra Bagglýtinga er horfið hafa hafi verið rænt
Heyrst hefur að sumir hafi verið numdir á brott af geimverum vegna fullmikillar vitneskju um stjörnusambandsstöðvaáætlun Baggalútísku Ríkisstjórnarinnar.
Heyrst hefur að það sé rétt
♪ Heyrðu mig væna... ♪
♪Hey, hey heyrðu mig góða, þú gerir það nú...♪
Heyrst hefur söngur.
Heyrst hefur að kominn sé nýr laumupúkaþráður sem Vlad veit ekki um.
Heyrst hefur í Vlad gramsandi í gömlum skúmaskotum.
Heyrst hefur að orðinn sje til eða að verða muni til laumupúkaþráður er einungis vjer vitum um eða munum vita um. Einnig hefur heyrst að laumupúkaþræðir er einungis einn gestur veit um hafi takmarkað gildi.
Heyrst hefur að illt sé að æra óstöðugan.
Og í framhaldi af því hefur heyrst að illt sé að leggja ást við þann sem enga kann á móti.