— GESTAPÓ —
Bestu limrurnar
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 11/4/05 09:35

Ort hefi ég anskoti mikið
en andinn mig nú hefir svikið
finn eigi orð
fer undir borð
fel mig og krota í rikið

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/4/05 11:52

Hvernig er það, fara úrslitin ekki að koma... ‹opnar kampavínið sigurviss og býr til þakkarlimbru›

Í limbrum ég lúserum pakka
lét ég hér frábærar flakka
Skal ykkur kenna
kannske mun nenna
ykkur þó ákaft nú þakka

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 12/4/05 15:50

Skabbi var sá eini sem sendi inn atkvæði svo hann ræður þessu, Skabbi sagði:

Bestu limrurnar að mínu mati, svakalega erfitt að dæma...

Z.Natan þrjú stig

Kvæði:
Bindindi bágt er að iðka.
Betr´ er að dálagleg griðka
færi þér öl
ef á því er völ,
& hjálpi þér liminn að liðka.

Enter tvö stig:

Kvæði:
á limrum er lítið að græða
þeim leirburði fánýtra gæða
ég fúkyrðum þveitá
þau flón sem sig spreytá
því skeinildi skáldskaparfræða

Barbapabbi 1 stig:

Kvæði:
Líkust var Lovísa hegra
lagðist hún kofveg’á negra.
Sár undir sprundi
Súlumann stundi:
„ég hef nú fíflað það fegra”

Vildi bæta þessari við sem mér þykir snilld, en því miður stiglaust, Kynjólfur:

Kvæði:
Hrossið nú lafmæðir losti
er limrunnar nema vill kosti.
Uss! Þessi leir,
líkist nú meir,
fertugum forhúðarosti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 12/4/05 16:24

Ja hjérna hér....................

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 12/4/05 16:26

Maður hefði átt að vera með meiri kjaft.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/4/05 16:31

Hefði ég vitað þetta hefði ég kosið sjálfan mig... hehe...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 12/4/05 17:02

Og ég sem var að hugsa um að kjósa þig.....ja sveiattan barasta.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 12/4/05 17:04

Nafni mælti:

Og ég sem var að hugsa um að kjósa þig.....ja sveiattan barasta.

Uss já, ef þetta hefði verið leynilegri kosning þá hefði ég getað gabbað þig og sagst hafa kosið þig hehe...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 12/4/05 17:11

hehe.....

LOKAÐ
        1, 2, 3
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: