Ég skil nú ekki hvað Hreintrúarflokkurinn er að troða sér inn í ráðningu nýs páfa þar sem þeir trúa ekki einu sinni á boðskap kaþólikka. Búið bara til ykkar eigin ekkisens páfa sem hefur ekkert skylt með kaþólisma eða kristni.
Hvað á það að þýða að vera að velta sér upp úr duttlungafullum aukaatriðum eins og að Hreintrúarflokkurinn sé ekki kaþólskur? Við höfum aldrei látið lítilfjörleg smáatriði standa í vegi okkar. Áfram! Aldrei að víkja!
Ég get svosem sætt mig við Bud sé hann kaþólskur en annars held ég að hann eigi best heima í hugarheimi hreintrúnaðarflokksins en ekki undir hatti páfa.
Bud er rammkaþólskur, enda ítalskari en spaggettí.
hugsar
Ertu þá dáinn
út í bláinn
eins og páfinn
skellir upp úr
ég hló svo mikið að fólk horfði á mig eins og ég væri einhver vitleysingur
bíddu.............en þú ert vitleysingur!!!
Æ, takk. En hvað þú ert sætur í þér.Brosi mínu blíðasta
Eruð þið ekki búin að heyra að kallinn stökk upp úr kistunni í dag og spangólaði á latínu "Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar", setti svo upp sólgleraugun sem Bono gaf honum og yfirgaf svo sviðið með gríðarlegum bravóköllum og húrrahrópum. Kallinn kann þetta enn!
Já. Kardínálarnir voru miður sín, enda voru þeir við það að skrifa undir samning við Hollywood um að gera annað framhaldið af Jóhannesi Páli; Jóhannes Páll III: The Revenge. Vonir um blokkböster eru orðnar að engu.
Jájá. Hann var ágætis fýr. Staðfastur. Sem er meira en hægt er að segja um fólk nú til dags. Verst að staðfestan náði til ýmissa hvimleiðra mála sem gáfu honum helst til mikinn íhaldsblæ.
Já, Julia hefur rétt fyrir sér með gáluleysi páfa - hann giftist aldrei held ég bara.
En á alvarlegri nótum þá er þetta í alvöru rétt hjá þér Julia. Aðgát skal höfð í nærveru sálar og allt það.
Þrátt fyrir að páfinn hafi verið bæði ókvæntur og barnslaus maður eru þúsundir hágrátandi manna að syrgja hann. Óskiljanlegt.
Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að það er algjör óþarfi að eiga afkomendur. Vilji maður láta hugsa vel um sig í ellinni og fá fjölmenni við útförina er best að verða páfi.
En ekki má gleyma merkingunni á orðinu páfi, komið af gríska orðinu pappas sem merkir faðir. Hann er líklega sá slíkra sem á flest börn. Reyndar var hann víst bara helgarpabbi flestra.
Hvað var meðlagið hátt hjá honum?
Kaþólska kirkjan á u.þ.b. að mig minnir 386.000.000.000.000 krónur Íslenskar.
Já það er ágætis upphæð en hvað var meðlagið hátt hjá páfa?
Hvað var meðlagið hátt hjá honum?
Það er óvíst. Verið er að reyna að ná til Dan Browns svo fást megi upplýsingar um málið. Hann er sá eini kardínálanna sem er nógu mikill kjaftaskur.