Vamban bara orðinn 1 árs, til hamingju með það! xT
Skál Vamban!
Skál félagar. Skrítið sem það er nú að ég sé einungis eins árs þá fíla ég mig nú samt sem einn af heldri borgurum Lútsins. Spurning hvort Enter eða Spesi hafi fiktað við kílómetrakílóbætateljarann minn?
Þar sem ólíklegt er að menn lesi mikið þráð sem ég bjó til á kveðist á með Rafmælum þá þótti mér rétt að birta þetta hér aftur... biðst afsökunar á því, en þetta er nú einu sinni Vamban...
Vamban ó þú vinsæli
vil ég þér nú óska
að rati í þitt rúmbæli
rosaleg sæt ljóska
Ári síðan áttir leið
áttavilltur drengur
birtist svo í Baggaleið
blótar ekki lengur
Kátur gengur götur hér
góður Vambalingur
fáðu hérna kvæðakver
kveðju Skabbi syngur
Ákavíti, skonsur, skens
skamt af últrakóbalt
Ávallt hjá þér gleði glens
gef þér drykki margfallt
Gestapó nú gleðst með þér
er gengur þú á lútnum
fáð'ér skonsu, fáð'ér smér
fáð'ér vín úr kútnum
Skál
Skál minn kæri! Þetta var fallegt af þér. Ljómar upp
Til hamingju kæri Vamban!
Til hamingju Vamban.
Skál! xT
Skál!
gefur Vamban hárfroður, greiður og tilheyrandi
Til lukku með daginn.
Geðveikt! Er þetta ekki með epoxíi í örugglega? Takk. Ljómar upp
Til hamingju með daginn.
Ó hjartanlega til hamingju með rafmælið Vamban minn.
Færir Vamban lítersflösku af vandaðasta Admiral sem völ er á, árgerð 55.
Til hamingju xT
Vjer óskum yður til hamingju með rafmælið. Skál ! xT Sýpur á fagurbláum drykk og sturtar nokkrum vörubílshlössum af ný-últrakóbalti á vel valinn stað nálægt aðsetri Vambans
Kærar þakkir herramenn. Nær í skóflu til að moka kóbaltinu inn í skúr en sjússar sig á Admiralnum fyrst
TIL HAMINGJU VAMBAN kyssir vamban dömulega á kynnina þurkar sér um munninn