Mér blöskrar það hversu ógnarháan skatt vort guðdómlega ríkisvald hefur á ýmsum afurðum svo sem kúmensafa og humladjús og þykir nóg komið. Ég veit um ástæðurnar sem gefnar eru en mér blöskrar þetta rán engu að síður.
Þætti mér gaman að vita hvað öðrum Bagglýtingum finnst.
Uss blessaður vertu hér er blúturinn ódýr og góur. Ákavítið rennur hér í ám og ég fæ mitt áfengi svo til ókeypis.
Já en skattar eiga að vera háir. Himinháir. Hvernig í ósköpunum eiga ráðherrar, embættismenn og aðallinn annars að fá sitt ? Að auki er nauðsynlegt að safna varasjóðum vegna hættu á ófyrirsjeðum útgjöldum (mútur eru þar einna algengastar, svo og svallveislur og hernaður) Sýpur á fagurbláum lúxusdrykk í tilefni kvöldsins og sendir reikninginn til embættis ríkisskattstjóra sem svo heppilega 'hittir á' að heyrir undir hasarmálaráðuneytið sem heyrir undir forsetafrúna
Ef einhverstaðar á að vera skattur þá er það á áfengi. Viltu frekar leggja sérstaka skatta á barnavagna eða göngugrindur? Ef þið eruð bara að kaupa vín til að smakka á því og njóta bragðsins, þá er það bara ekkert svo dýrt. Flaska af brennsa dugar ansi lengi ef ætlunin er bara að fá sér einstaka sinnum rétt nóg til að finna gott bragð. Ef ætlunin er að hella sig spólandi fullan og klikkaðan er bara best að læra að brugga (og eima ef út í stórræði á að fara).
Svo er það gamla góða reglan: ef þér líka ekki verðið, slepptu því að kaupa vöruna! (Sem íslendingar virðast ekki geta lært)
Er ekki málið að skilgreina kynlíf sem munaðarvöru og í kjölfarið að taka út sérstaklega áhættuhópa í því samhengi ( s.s. lausláta einstaklinga) og leggja á þá afleiðingarskatta, sem kæmu til niðurgreiðslu hinna sem láta sér nægja ólífræna útfærslu að mestu leyti?
Ef einhverstaðar á að vera skattur þá er það á áfengi. Viltu frekar leggja sérstaka skatta á barnavagna eða göngugrindur? Ef þið eruð bara að kaupa vín til að smakka á því og njóta bragðsins, þá er það bara ekkert svo dýrt. Flaska af brennsa dugar ansi lengi ef ætlunin er bara að fá sér einstaka sinnum rétt nóg til að finna gott bragð. Ef ætlunin er að hella sig spólandi fullan og klikkaðan er bara best að læra að brugga (og eima ef út í stórræði á að fara).
Svo er það gamla góða reglan: ef þér líka ekki verðið, slepptu því að kaupa vöruna! (Sem íslendingar virðast ekki geta lært)
Þarna rataðist þér aldeilis rétt orð á munn. Get ekki verið meira sammála.
Mér blöskraði verð á áfengi og ég fór bara að brugga...
Ef einhverstaðar á að vera skattur þá er það á áfengi. Viltu frekar leggja sérstaka skatta á barnavagna eða göngugrindur? Ef þið eruð bara að kaupa vín til að smakka á því og njóta bragðsins, þá er það bara ekkert svo dýrt. Flaska af brennsa dugar ansi lengi ef ætlunin er bara að fá sér einstaka sinnum rétt nóg til að finna gott bragð. Ef ætlunin er að hella sig spólandi fullan og klikkaðan er bara best að læra að brugga (og eima ef út í stórræði á að fara).
Svo er það gamla góða reglan: ef þér líka ekki verðið, slepptu því að kaupa vöruna! (Sem íslendingar virðast ekki geta lært)
Ég hef ekki átt í neinum vandræðum með að sleppa því að kaupa vöruna.
Það er líka mun skemmtilegra að læða vörunni út án þess að borga fyrir hana.
Það er mikil synd og skömm að ekki geti allir orðið forsetar Hæstaréttar.
Glúgg, glúgg, glúgg, glúgg, glúgg, ... "Ah, þetta var hressa...n...d... zzz"
Íslenskt já takk, vill einhver landa?
Hljómar vel... ég hef alltaf verið hrifinn af landa... ekkert að þeim fína drykki... Skál
Sammála. Mér tókst á tíðum að brugga nokkuð góðan landa. Fyrsta ílögnin varð eitthvað skrýin og ég hellti því niður, en ílögn nr. 2 varð góð og gat ég fyllt margan manninn á henni. Stekkur hæð sína
Býður landa á línuna, stolt af eðalveigunum. Þessi er ekkert síðri en vodki á bragðið, bara mun skemmtilegri áhrif og minni eftirköst.
Verði ykkur að því...
Já, þakka þér fyrir. Slengir í sig einu staupi og gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég myndi skattleggja gamalt fók í vaðstígvélum sem stendur til hálfs í þartilgerðum ám og stöðuvötnum.