Þarf ég að stafa allt ofan í ykkur? Hrökklast aftur á bak og hrasar við Þegar Gaflari segir að eitthvað sé -firskt, þá er hann ekki að meina eitthvað sem er hinum megin á landinu! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Kallar á öryggisgæsluna Ívar viltu hafa stjórn á henni.
Hafnfirzkt sumsé? Er menntastofnunin hafnfirzk? Er þetta tengt fræðasviði mínu ...óbeint?
Þetta hlýtur þá að vera af einhverskonar hafnfirski grínaraplötu sem náði aldrei landi utan bæjarmarkana. Útvarp Hafnarfjörður var líka á svipuðum tíma hættulega nálægt Rás 2 á útvarpsstillitakkanum.. svo ég básúni óröksemdum yfir fólk
Ég er ekki að kveikja á neinu dægurlagi í mínum eyrum við að lesa þetta. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hérna....þetta er að æfa dýfingar á tungubroddinum...Davíð Þór og...hann...gaur...
Hérna....þetta er að æfa dýfingar á tungubroddinum...Davíð Þór og...hann...gaur...
Steinn Ármann?
Kátir Piltar?
Hérna....þetta er að æfa dýfingar á tungubroddinum...Davíð Þór og...hann...gaur...
Steinn Ármann?
Kátir Piltar?
Já
Bíðum nú við... ef menntastofnunin er hafnfirsk, ertu þá að vísa í Flensborg eða Iðnskólann? Eða er kannski átt við grunnskóla?
Andar djúpt
Já. Grunnskóli.
Radíusbræður og Kátir piltar komu hvergi nærri.
Grunar Hexið um græsku, jafnvel grísku
Hvorugur þeirra Radíusbræðra, segirðu?
Túnfiskakór Öldutúnsskóla hefur e.t.v. verið þarna að verki?
Faðmar Natan að sér Það var mikið! Túnfiskar voru það!
... Natan minn? Ertu nokkuð með nafnið á laginu? Ekki það að þú hefur klárlega unnið til verðlaunanna.
Það var Og.
Ég verð víst að eiga það inni - verð fjarverandi á morgun.
Veit þvímiður ekki hver titill lagsins var.
Hvers lags kæruleysi er það að vera ekki við á morgun?!? Þetta eru ekki raksápupáskar!
Kannski maður geti grafið upp texta að gömlu, og með öllu óþekktu lagi sem var frumflutt í safnaðarheimili Fáskrúðsfirðinga rétt fyrir aldamótin 17. hundruð.
Ég hlusta nú bara ekki á svona lagað. Eina afsökunin fyrir að hafa ekki heyrt þetta lag er að hafa ekkert hlustað á Rás 2 vorið og sumarið 1986. Lagið var spilað oftar en Sjemusjemulaví hennar Söndru litlu Kim (hinnar einu réttu, ekki Gestapóans sem þvælist fyrir okkur) en það ku hafa verið þriðja hvert lag alla daga.
Það er svo gaman í Öldutúni
Bíðum bara eftir Natan, hann kemur með næstu getraun.
Nújæja, fyrst enginn hefur tekið af skarið -
- úr hverju gæti þetta verið:
We could be going out to eat
To unfold - that´s what I need -
all of my generousity...