Ég man þegar dælt var fyrir mann á bensínstöðvum. Maður beið inni íá hlýrri stöðinni, umvafinn framandi ilmi af allkyns bílavörum. Svo kallaði bensínkallinn upphæðina inn í gegnum þartilgert kalltæki og maður borgaði.
Ég man þegar Toyotabílar voru hlægilegar druslur.
Núna eru það bara hlægilegir, en góðir bílar.
Ég man eftir því hvað ég hataði leikfimi og leið illa í henni, alveg frá 6 ára aldri til dagsins í dag. Ég hef sett leikfimi á lista yfir óvini mína.
Ég er ekki frá því að setja eigi leikfimi á listann yfir óvini ríkisins. Hvað segir herra Vladimir um það?
Ég man þegar Toyotabílar voru hlægilegar druslur.
Núna eru það bara hlægilegir, en góðir bílar.
Man eftir nokkuð hlægilegri bílategund; Datsun.
Ef minnið svíkur mig ekki (sem það reyndar oft gerir) var n.k. kýrauga á einhverri týpunni af þessum bílum. Segið mér - er þetta ennþá framleitt?

Datsun var keypt upp af Nissan held ég...við áttum einmitt Datsun Kirsuber þegar ég var að alast upp...það var fallegur bíll og góður.
Leiðrétting: Nissan notaði Datsun-merkið frá 1932-83...
var n.k. kýrauga á einhverri týpunni af þessum bílum. Segið mér - er þetta ennþá framleitt?
Það var kýrauga á Dæhatsú Sjareid eitt árið. Og þetta er rétt hjá Tínu, Nissan og Datsun er sami hluturinn.
Annars man ég þegar loftskeytastöðin stóð ein úti í gufunesi.
Ég man eftir Limahl. Því miður.
Ég man eftir þessum líka ofurfyndna brandara:
A: "Ha?"
B:"Limahl!"
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég man satt að segja ekkert.
Ætti að fara og sofa þetta úr mér.
Ég man eftir þessu:
sp: Hvað kallast það að elskast í svefnpoka?
sv: Að fá sér hal í mal.
Corazon átti þennan.
Svo man ég auðvitað eftir smjörfjallinu.
Ég man eftir Madness. Hver man ekki eftir „one step beyond!“
Ég man eftir Madnesstónleikum í Höllinni
Ég man eftir Óla Maggadon í bæjarleyfi á 17. júní.
Ég man skákeinvígi aldarinnar þegar Fischer og Spassky tefldu í Laugardalshöll.
Ég man að ég fékk martröð sem var þannig að umræddur Fischer ætlaði að koma aftur... bíddu, ég er VAKANDI!!Skríður út í horn