Ofnotkun á Ypsílon
aukast þykir mér
Á zetum líka zíst á von
í zetninguna hér.
Ritningin er bersögl bók
barmafull af klámi.
Ritningin er bersögl bók
barmafull af klámi.
Sælt er hverri sóðabrók
að sitja í prestanámi.
Kristin trú er krumpuð flík
á kroppi syndaranna.
Kristin trú er krumpuð flík
á kroppi syndaranna
jafnframt er hún engu lík
í anda guðspjallanna
prestar strauja strjúka af
stranga hempuklæða
Prestar strauja, strjúka af
stranga hempuklæða.
Bárust oft á bóla kaf.
Börnin vildu hræða.
Unglingarnir sumir kjósa sjálfspínsl.
Setja upp pinna, gadda og tattú.
Unglingarnir sumir kjósa sjálfspínsl.
Setja upp pinna, gadda og tattú.
þetta er nú annars bara hálfsvínsl-
egur partur, vita mátt’ú!
Fullur illsku Voffi velur
voðalegust orðin
Fullur illsku Voffi velur
voðalegust orðin
Inn í taktinn sjaldan telur
tæmist orðaforðinn.
Augun dró í danskan pung
drottning pönksins Nina.
Augun dró í danskan pung
drottning pönksins Nina
Sprühende und Spannung
spjó í hlusti mína
Nena þótti þíðri mey
þokkaleg var gyðja
Nena þótti þíðri mey
þokkaleg var gyðja
Hagen Nina hamast grey
hana við að bryðja.
Bókum fögrum upp ég fletti.
Frá þeim Barnes og Noble.
Já ég veit að ég get verið kvikyndislegur, en þetta er nú einu sinni íþrótt og þ.a.l. eiga menn að stefna sífellt hærra í stað þess að vera alltaf í meðalmennskunni. Ekki vildi maður alltaf tefla við létta andstæðinga.
Bókum fögrum upp ég fletti.
Frá þeim Barnes og Noble.
Inní bílinn bækur setti
bíllinn minn er Ópel
notkun stuðla stenst hér ei
staðsetning og fjöldi
Ef þetta er íþrótt, þá ættirðu nú að fara eftir reglunum Voffi minn...villt ekki láta dæma þig úr leik :).
notkun stuðla stenst hér ei
staðsetning og fjöldi
ónýtt er mitt andans fley
enda keypt hjá Höldi.
Bláan Thule drekk úr dós
drekki mínum sorgum
Bláan Thule drekk úr dós
drekki mínum sorgum
Á fjórðu dós ég fer út í fjós
Og iðrast þess á morgun.
Lít ég yfir löndin smá
sem liggja vel við höggi.
Lít ég yfir löndin smá
sem liggja vel við höggi.
Sum þar mætti setjast á
og siða ögn með böggi
Ef ég lít á heimsins hjörð
hugsa ég gjarnan svona:
Ef ég lít á heimsins hjörð
hugsa ég gjarnan svona:
Óláns mannkind, illa gjörð
eflaust er drottinn kona.
Hagsýn þjóðin heima ræktar
hass til eigin nota.
Hagsýn þjóðin heima ræktar
hass til eigin nota.
Til einkabrúks í átta hektar-
a ah! ég niður pota
Það er varla alveg illt
ef að boðar svona gott
glottir þegjandi út í tómið yfir eigin steypugerð
Það er varla alveg illt
ef að boðar svona gott
Upp á jökli er ávallt skýlt
ef hann blæs að vestan – not.
Spttifærinn hans spúir eldi
Stebbi og Halldór finna skjól
Spittfærinn hans spúir eldi
Stebbi og Halldór finna skjól
Björnsins undir Bjarnarfeldi.
Bláa hendi dauðans kól.
Kræfur skákar Kasparov.
Kannski mátar Anand.
Og botnið þið nú!
Kræfur skákar Kasparov.
Kannski mátar Anand.
Lítið gefur gaspur lof
góði lestu A.And
Lítið afrek er að gera
ómögulega fyrriparta
Er nú ekki rétt að hafa a.m.k. íslensk orð í svoleiðis leikfimi