Þakka þér fyrir Tigra mín. Annars myndast ég nú alltaf vel speglar sig í augasteinum Tigru
Sælar stúlkur! Ætlið þið ekki að bjóða mér í glas og keppast við að reyna við mig aðeins? Gerir sig óþarflega en þó undarlega kunnuglega heimakominn
Ég má ekki taka þátt í viðreynslum við þig Vamban minn af tvemur ástæðum.
1) Sumir púkar yrðu ósáttir.
2) Hinar stelpurnar myndu ekki þora að reyna við þig, sökum hættu á tígrisdýrabiti.
En ég skal sitja úti í horni og dáðst að þér í staðin.
Ég skal senda þér gott væb og magnaðan atmos!
Jú, það værir vel þegið. Hvurra manna eruð þér ungfrú?
Ég er af afskaplega góðum ættum. Mér kæmi ekki á óvart þótt blátt blóð rynni í æðum mínum, en þar sem ég hef aldrei slasað mig þá er það enn óvíst. Færir Vambani öndvegisdrykk Skál!
Iss, þetta er einhver svikahrappur, Vamban minn. Bara í síðustu viku reyndi hún að selja mér klukkuna á Hlemmi.
Noh, stelpurnar strax farnar að slást um sjarmatröllið Vamban.
Fær sér sæti með popp og kók og bíður eftir glæsilegu catfight.
Nú er eins gott að vera viðbúinn glimmersprengingu Ljómar upp
Ekki er ég að fara að berjast um þennan leðurdvergasmala. Ég vil bara fá klukkuna mína, sem ég nota bene greiddi of fjár fyrir.
Svona, viðurkenndu það.
Gefur Tínu olnbogaskot
Þú ert skotin í honum. Nudge nudge, say no more say no more
Candid photography...
Svona, viðurkenndu það.
Gefur Tínu olnbogaskot
Þú ert skotin í honum. Nudge nudge, say no more say no more
Wink wink, snap snap
Æ, það er kannski betra að snúa sér að blárra blóði. Hvað segir þú annars konungur minn?
Hrmm hrrmm
Fer undan í flæmingi
Ég segi allt ágætt. Minni á að ég hef mína hjartadrottingu, ungfrú Júlíu, íðilfagurt fríðleiksfljóð, smekkvísisvesír og hefðardömudís.
Auðvitað minn kæri konungur. Ekki dytti mér í hug að hrekja drottninguna frá konungi sínum.
Hugsar
Þú hefur mig kannski bara í huga ef eitthvað kæmi upp á? Ég vona samt að ekkert komi upp á. Laumar nafnspjaldi til Hakuchis Líður drottningunni ekki bara vel?