Andefni. (Eða andarefni...)
Að stara út í loftið í nokkrar mínútur og öskra svo.
Stundarbrjálsemi
Gula klessan sem er ofan í miðjum sérbökuðum vínarbrauðum?
Vínarbrauðsdrullið
Hálfkláraður vísufyrripartur
Vísukvartlingur (þ.e ef 1 af 4 línum vísunnar hefur verið kláraður)
Börn sem vilja fá pylsu með engu, ekki einu sinni pylsu. (Bara pylsubrauð)
Pylslingur.
Unglingur sem vill fá pylsu með öllu nema pylsu. (Grænmetisæta.)
Ópylsungur.
Maður undir þrítugt sem hefur ekki enn náð sér í kvenmann.
(Úps. Ég var ekki búinn að lesa reglurnar, he,he)Frjáls-ari.
Æla eftir fyllerí sem endaði á Bæjarins Bestu.
Bæla. (Bæjarins bezta æla.) (Ég átta mig ekki á orðinu sem þú komst með hér að ofan. Hvað kemur það setningu minni við?)
Siglingafræðingur sem stundar Curling í frístundum.
Lingur
Fermingarbarn sem tekur fram, að allar gjafir séu vinsamlegast afþakkaðar, í boðskorti sínu í fermingarveisluna.
Ungmennafélagshugsjónamaður.
Maður sem heitir Hörður en er alrei kallaður annað en Bjössi.
Nafnvillingur
Hvað nefnast þeir karlmenn sem í sífellu láta sig dreyma um stærri getnaðarlim?
Langlimlangarar.
Það að hreinsa súpuleifar úr yfirvaraskeggi sínu?
Mottuhreinsun er almennt notað, súpusullúrmottuhreinsun væri þá sérhæfðara orð.
Hálsólin fyrir farsímann (og annað) heitir hvað?
Það að hreinsa súpuleifar úr yfirvaraskeggi sínu?
- Grípa til (yfir)varaforðabirgðanna. -
Bjúing: Gemsasnara
Það að fanga spilafíkla í net sitt með því að bæta inn teninga-fítusum í Gestapópystasystemið...
Hóstar
Næsta nýyrði þá, Helena?
Úps, þetta var kjánalegt af mér.
Mig vantar þá orð yfir það þegar maður í ákafa sínum svarar einhverjum leik (eins og þessum) en gleymir að gefa næsta manni eitthvað til að spila úr. Svipað og ég gerði í gær roðnar og lætur sig hverfa
Nýjabráðlæti
Að vakna daginn eftir að hafa verið hálf fullur á gestapó og hneykslast á sjálfum sér yfir skrítnum innleggjum.