Ég er orðin fimmtugastiogsjötti í heimavarnarliði Baggalútíu. JESS!
Og með þessum skrifum verð ég fimmtugastiogfimmti, því herra Schultz er jafn mér að innleggjum, eða 143. Sem er náttúrulega ekki mikið.
Hvað eru þingmenn Baggalútíu margir. Mér finnst þeir ekki meiga vera færri en 63, og því tími til kominn að krefjast sætis á þingi. Er til háttvirt þing Baggalútíu, eða eru þar einungis ráðherrar? Og ef svo. Gæti ég fengið þingsæti fyrir eitt af hinum hæstvirtu ráðherrum sem nú sitja.
Helsu kostir mínir eru að ég sef vært í fjölmenni og hávaða.
Rænir sál hundingjans og stingur henni í vasan og labbar blístrandi í burtu
Val á Ráðherrum Baggalútíu hefir ekkert með fjölda innleggja að gera. Það hefir hinsvegar allt með áfengisneyslu, gáfnafar, stafsetningu, dusilmennsku, höfðingjahollustu, mútuþægni, kóbaltvinnslu, kóbaltneyslu og þjóðerniskennd að gera.
Og varðandi fjölda innleggja þá eru það gæðin er skipta máli en eigi magnið Verður vandræðalegur á svipinn
Telur sig ekki hafa neitt til að skammast sín fyrir
Lítur inní herbergið og sér að það er súr stemming, og er því snöggur að skella og hlaupa í burtu
Farvell Frans!
Val á Ráðherrum Baggalútíu hefir ekkert með fjölda innleggja að gera. Það hefir hinsvegar allt með áfengisneyslu, gáfnafar, stafsetningu, dusilmennsku, höfðingjahollustu, mútuþægni, kóbaltvinnslu, kóbaltneyslu og þjóðerniskennd að gera.
Þetta þykir mér skinsamlegur ráðahagur. Það ættu fleiri þjóðir að taka sér þetta til fyrirmyndar. Get ég fengið kóbalt í skiptum fyrir gamlan Chevrolet pickup?
Gæti henntað vel sem sjúkrabíll, á að eiga eitthvað eftir af kóbaltinu fer að leita að kóbalti
rúllar einni kóbalttunnu inn og lætur hundingjann fá hana Svona, fæ ég pikköppinn?híar á Zoidberg
VÁ... Heil tunna! Takk Mikill Hákon. Ég átti nú best von um að fá eitt kíló fyrir tonnið. En þú býður hvorki meira né minna enn Kíló á hestafl. Það er, ef tunnan er 200 kg. sem ég reikna með. Ekki færirðu að rúlla hérna inn til mín hálf tunnu.
Hoppar heljarstökk afturábak. Hleyp svo inn í eldhús og sæki lykilinn og rétti Mikla Hákon með þakklæti
tekur við lyklinum Maður fékk nú að kynnast kostum þess að eiga pikköpp þarna úti í villta vestrinu
En af hverju að eiga pikköpp þegar það er mun auðveldara að fá sér hikköpp?
Hvað með pikköpp sem segir hikköpp? Þessi gamli skrjóður segir það OFT!
Starir þegjandi út í loftið
Fann ykkur laumpjakkar. Eigum við að laumast í ástarleik?
röltir inn Hmmmm? ..... ahh jahérna hér