Vér lásum nýlega frétt hér á Baggalúti af manni nokkrum er óvart kom sér upp langdrægum kjarnavopnum í bílskúr sínum. Eftirfarandi brot úr fréttinni vakti sérstaka athygli vora Lendir í vandræðum með að leyna áhuga sínum og ákafa:
„Hún hefur greinilega komist í plútoníumið mitt“
Einhver, og þá sér í lagi ritstjórnin (Enter í þessu tilviki) hlýtur að vita meira um þetta mál og þá sér í lagi hvar Gísli þessi komst yfir plútóníum. Þætti oss vænt um að nánari upplýsingar um það kæmu fram hér og um hve mikið af því er að ræða. Þar að auki minnir oss að vér höfum hitt mann þennan og þurfum vér að hitta hann aftur og fá uppgefið heimilisfang því... hérna sko við eða hann sko, vér... höfum undir höndum hlut er hann gleymdi sem vér þurfum að koma til hans í eigin persónu Athugar hvort skriðdrekarnir og leyniskytturnar séu í viðbragðsstöðu ef viðbrögð berast.
Þar að auki væri gaman að fara eigi einn í 'heimsókn' til hans heldur með fjölmennu fylgdarliði Veltir fyrir sér hvort einhverjir hafi áhuga
Nei, nei, nei. Ég læt ekki plata mig útí svona öðru sinni. Síðast þegar ég fór af stað sem vitundarvottur fyrir þig, Vladimir, þá vaknaði ég á tröppunum að Heiðmörk, og hafði þá í ölæði skrifað undir alls kyns ólíklega pappíra.
Þú getur bara farið einn, þú þarft enga votta að þessu vesini.
Brottför verður er vér höfum fengið fréttir af aðsetri umrædds Gísla. Það verður vonandi fljótlega því það er orðið alltof langt síðan vér höfum farið í skemmtilegar 'kurteisisheimsóknir'.
Ég kem með Tekur til skotfæri, hest og viðeigandi höfuðfat og hlakkar til að komast loks í almennilegan skotbardaga
Kemur hlaupandi inn á þráðinn, móður og másandi með ákavíti í hendi
missti ég af einhverju, eruð þið nokkuð farnir... ég er alltaf til í missjon... góð ástæða til að fagna eða syrgja í Ákavíti á eftir... skál
Þér komið í tíma, leiðangurinn er enn ekki hafinn því letihaugarnir í ritstjórn hafa eigi komið með umbeðnar upplýsingar Setur leyniþjónustu forsetaembættisins í málið og ákveður jafnframt að ítreka fyrirspurnina á öðrum stað
Það tilkynnist hér með opinberlega að nauðsynlegra upplýsinga hefur verið aflað eftir krókaleiðum þar eð ritstjórn neitaði að láta af hendi umbeðnar upplýsingar. Það dugði m.a.s. eigi að bjóða ritstjórninni upp á að gerast sek um mútuþægni.
Af ástæðum sem eru ríkisleyndarmál hefur verið ákveðið að hinkra með aðgerðir þar til nk. sunnudagskvöld.
Ég verð í startholunum... iðar allur af gleði og tilhlökkun
Á ekki að gera neitt... eða er það annars staðar... sötrar Ákavíti og bíður
Skálar í langdrægu viskýglasiSkál!
Eldflaugar eru ekkert annað en reðurtákn. Hver er svo þessi þessi kall sem safnar þessum tittlingum?
Hann getur sko alveg fengið að handfjatla minn!
Eldflaugar eru ekkert annað en reðurtákn. Hver er svo þessi þessi kall sem safnar þessum tittlingum?
Hann getur sko alveg fengið að handfjatla minn!
Afhverju ætti hann að vilja það, hann er þegar með svona lítinn rauðann hnapp í skrifstofunni sinni.