— GESTAPÓ —
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 27/12/03 21:15

Kveikir uppí,engu ann
blæs út reykjar kófi
Reykir mikið, ekki kann
una miklu hófi
<---- lesist síðan afturábak

Hófi miklu una kann,
ekki mikið reykir
Kóf(i) reykjar út blæs'ann,
engu uppí kveikir

Var að byrja að reykja!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 28/12/03 15:18

það er allt í lagi að reykja dýra vindla, en þegar sígaretturnar koma til sögunnar er illt í efni.

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 29/12/03 04:01

Mér finnst þetta nú frekar blús en djazz.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 29/12/03 15:19

Láttu nú ekki svona, Stebbi blús, en leibbi djazz. . .

Svo er það pípa sem ég reyki. Veit nokkur ykkar símann hjá Sesar A?

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 4/1/04 14:48

reyktu enn í rettufans
reyktu vel með elegans
reyktu ekki reyna stans
reyktu ég skal senda krans

‹kveikir sér í feitum vindli›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/1/04 15:35

Krans með þökkum þigg ég
þegar dauður ligg ég,
tóbak reyk' og tygg ég
tvennt sem að drepur mig, hygg ég.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 14/1/04 05:57

nikótín þú yndislega eitur
ei mig grunar hvar ég væri án þín
þú færir burtu trega ég verð teitur
tilveran svo ósköp björt og fín

nasir mínar neftópakið fyllir
nærir lungun reyksins blessað ský
pípustertur ilmar, glóðin gyllir
gæfu minnar sælu enn á ný

þó að einhver þumbi verði hræddur
þygg ég áfram nautna minna hey
í krabbamerki kornabarn var fæddur
úr krabba fer að lokum er ég dey

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Fellaskáldið 15/1/04 22:02

Á tóbak set ég allt mitt traust
tuggið bæði og reykt
Vetur sumar vor og haust
vindling get ég sleikt

GESTUR
 • LOKAР• 
krummo 18/1/04 13:47

Tóbak ætti bara að banna
börnum vorum líka granna,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 18/1/04 18:02

hey þarna og hósanna
jillibúms og sópanna

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 19/1/04 01:10

ef hugsunin fer út að fjara
fæ ég mér bara til vara
kornótta kös
í kolsvarta nös
ekki er tópak tóm tjara

ef fókusinn virðist að fara
ég fæ mér í nösina bara
hrópa svo vel
helvítis hel-
víti og verk mér í snara

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 19/1/04 02:22

Tóbaks-tauma, elskar hún
togar í mig, heimtar koss.
Safarík klessan, sæt og brún,
streymir út, eins og foss.

Lifi leirinn - lekandi úr tóbaksmunni

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 17/2/04 00:03

Tók í nefið nasastór
nefljótur er gæjinn
tóbaks pontu Tommi fór
á truntu sinni í bæinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 7/4/05 11:47

Tóbaki treð ég
tóma í pípu.
Sósuna sýg ég
set mig í klípu.
Hausverkinn hef ég
hátt upp á gnýpu.
Tjaldana tel ég
tittling og snípu.

Loftið mig lýir
létt er í brjósti.
Spurningum spýir
spursmálið hósti.
Reykurinn rýir
ragna með þjósti.
Mál er að mígir
mund´ eftir pósti.

Klóra nú kolli
kafrek svo nagla.
Dauði í drolli
daus fullur hagla.
Skotin nú skolli
skýtur á gagla
Ömurleika olli
át- frekjan -vagla.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: