Víða finnast villingar
vargar, hundar, kettir
en snöggtum færri snillingar,
snauðir, illa settir.
Flest er vænt, sem vel er grænt
ef vafið er í jónu.
Flest er vænt, sem vel er grænt
ef vafið er í jónu.
Það er kænt að hafa hænt
hana Dísu mjónu
Svamla nú um svörtumið
Svallararnir góðir
Svamla nú um svörtumið
Svallararnir góðir
Ganga svo inn um Heljar hlið
halir býsna móðir.
Á norðurlandi fannfergi
fer á kostum.
Á norðurlandi fannfergi
fer á kostum.
Hýrumst inn í herbergi,
heima nostrum.
Skolast út í rok' og regni,
Reykjavík á sjó.
EÐA
Skolast út í regn' og roki,
Reykjavík á sjó.
Ykkar er valið, notið það sem rímar betur.
Skolast út í rok' og regni,
Reykjavík á sjó.
Þó ég þetta fyrstur fregni
fer í inniskó.
Skolast út í regn' og roki,
Reykjavík á sjó.
Bjargað getur Bónuspoki
blautum spariskó.
&
Engan góðan íslending
árstíðirnar plaga.
Engan góðan íslending
árstíðirnar plaga.
Í lágdeyðu sem landsynning
leggst hann út í haga.
villast nú um Vestfirði
veðurbarðar hetjur
villast nú um Vestfirði
veðurbarðar hetjur
býst ég við að best yrði
bjalla strax í med.jur
Veðurhamur víða fer
veldur tjóni á Norrænu
Veðurhamur víða fer
veldur tjóni á Norrænu
Eyjólfur blindfullur er
Ei lengur með rænu
Þök bygginga bresta nú
brotna undan snjó
Veðurhamur víða fer
veldur tjóni á Norrænu
Færeyskt ennþá fleyið er
Og fjasar enn á torrænu
Þök bygginga bresta nú
brotna undan snjó
Fokið gat í snæri snú
snú í endaþjó
Spennt við horfum ædol á
ætl'ún vinni stelpan?
Spennt við horfum ædol á
ætl'ún vinni stelpan?
ekki vil ég um það spá
ágæt þó sé telpan
Ef þú ganar glæpaveg
gáðu að þér manni
Ef þú ganar glæpaveg
gáðu að þér manni
hægri vinstri, háskaleg
hætta þér ég sanni
Fylgdu reglum fetaðu
fótspor sannleikans
Fylgdu reglum fetaðu
fótspor sannleikans
Farðu úr og fretaðu
fimur Óla Skans.
Síðan skaltu hlaup'í hring
hopp'í kar af rjóma
Síðan skaltu hlaup'í hring
hopp'í kar af rjóma
sem er besta þarfaþing
og þér til mesta sóma
skrúbba máttu skanka þar
skítinn burtu spúla
Síðan skaltu hlaup'í hring
hopp'í kar af rjóma
sem minnir helst á hagyrðing
með hugsun galtóma
Lögin eru í landi voru
léleg oft á tíðum
Heldur seinn...
skrúbba máttu skanka þar
skítinn burtu spúla
að lokum brölta inn á bar
og berja einhvern Skúla
Ef skortur er á Skúlum þar
skaltu bara leita
Hvað þarf að skrá sig oft inn hérna?
Ef skortur er á Skúlum þar
skaltu bara leita
Úti á götum, inni á bar
eða upp til sveita
Finnist ekki fíflið þar
farðu ekki á taugum.
Finnist ekki fíflið þar
farðu ekki á taugum.
delinn bara drullusnar
drekkti sér að Laugum
fólið kannski flýtur vel
fáir munu gráta
Fólið kannski flýtur vel.
Fáir munu gráta.
Kannski hæfir kjafti skel.
Kannski er stelpan skjáta.
Oft ég hugsa um heilagan Deus.
Held að bullað hafi Nietzsche.