Þyrfti ekki að hanna einhverskonar úníform fyrir ráðherra þessa lands? Þá hef ég helst menntamálaráðherra í huga.
Starir þegjandi út í loftið með dauft glott á fési
Nykur leggur þann skilning í að um ráðamenn Baggalútíu sé um að ræða enda firra að fara klæða núverandi stjórn þessa lands þar sem hún mun láta að störfum bráðlega. Hvað með ef við klæðumst að rómverskum sið þ.e. tóga og með lárviðarkransa á höfði. Það er svo afskaplega virðulegt og ljóðrænt í senn, eins myndi skapast skemmtilegt andrúmsloft í fyrirhuguðum svallveislum Skabba.

Sammála því um sumartímann en ég nenni ekki að klofa snjóinn í sandölum og tóga.
Þá klæðumst við sauðaskinni.
Þá klæðumst við sauðaskinni.
Sem fótabúnað eða sem albúnað? Ahh skítt með fötin ég skal vera berrassaður ef að ég fæ bara Romm og Stroh.
nei veistu hvað, við skulum bara leggja leynineðanjarðarjárnbrautarstöð, bara fyrir ráðherrana. Við þurfum samt ekki að sleppa romminu og strohinu fyrir það. lítur kankvíslega í átt að áfengiskjallaranum sínum

Sammála því, ég hef nebblega verið svolítið mikið fyrir að vera neðanjarðar.
Þá áttu eftir að elska að vera í ríkisstjórn Baggalútíu, við störfum aðallega "neðanjarðar".
ahhh SWEET. blandar saman Stroh og túnfisk, sýpur af áfergju.
Já, þú myndir taka þig vel út í þessum búningi. Verst hvað þú ert flatbrjósta.
AAAÚÚÚÚWWWWW, spangólar.
Já það er eigi hægt að skammast í okkur fyrir að hugsa ekki um mjúkara kynið, þarna erum við berlega að koma á móts við kröfur kvenna og þeirra baráttu um að konur séu líka fólk. Hvaða ríkistjórn önnur hefur boðist til að styrkja og taka þátt í aðaláhugasviði kvenna þ.e. fatakaupum með svona afgerandi hætti. Nykri hlakkar mikið til að sjá Feminstan og Ormlaugu í þessum glæsilega og jafnfram virðulega búningi!

Mér finnst þetta nú heldur efnislítið fyrir loftslagið hér, fyrir utan hvað þetta er glyðrulegur búningur.
Enda var þessi klæðnaður hugsaður sem inniföt, við erum nú ekki alveg "gaga" ! Til notkunar utanhúss höfum við pantað 560 svona skemmtilega galla í stærðunum small, medium og large. Módelið er Mjási.
Mosa frænka, Ormlaug og Júlia hafa allar samþykkt að taka að sér störf sem súperhetjur Baggalútíu og munu verja ríkið með kjafti og klóm gegn óvinum vorum. Vér höfum einnig pantað þessa sérlega ógnvekjandi búninga fyrir þær með innbyggðum "Kóbaltgeislabyssuaugum".
Það er bara rétt eins gott að þessir búningar séu ekki sponsoraðir af baggalútsríkissjóðnum.
ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA