Enter, hverskonar yfirgengileg drambsemi er þetta? Nýskriðinn úr skóla eftir 18 ára staut með E í aðaleinkunn og ófær um að sjá út fyrir kámugan tölvuskjáinn.
Ég sem er ekki bara búandi með 250 fjár, heldur líka hundahreinsunarmaður, meðhjálpari, oddviti, forðagæslumaður, formaður kjörstjórnar, skólabílstjóri og húsvörður í félagsheimilinu og að auki formaður fjárræktarfélagsins og meðlimur í kirkjukórnum, sameinaða sýslukórnum og karlakórnum Skarfinum. Þá er ég formaður þorrablótsnefnadarinnar og þér er hér með ekki boðið.
Svo stingurðu upp á að ég éti ærnar og fái mér eina vinnu enn - kjaftæði.
Hættu sjálfur að leika þér í tölvunni og fáðu þér vinnu, þá geturðu etv séð fyrir konunni og krökkunum og hætt að gera út á bætur, styrki, lán og yfirdrætti.
Þú ræður svosum hvað þú gerir við þessar landeyðandi heiðarrottur þínar - en ég mæli ennþá með alvöru vinnu.
Ég hins vegar ætla að fara að góðu ráði þínu, standa upp frá skjánum og skella mér á þorrablót.
Kærar stuðkveðjur í sveitina.
Fagnar
Og ef þú heldur þig ekki á mottunni, loðsvampurinn þinn, þá sendi ég þig í hundahreinsun hjá honum Golla.
FAGNAR
Kærir Sverfil fyrir dýravernd
Gefur Bauv knús
Þetta er allt í lagi Bauv minn.. Enter er bara afbrýðissamur því að Númi heldur við þig en ekki hann.