— GESTAPÓ —
Náði að lesa allt
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 22/1/05 17:01

Ef þér finnst það skrítið... spurðu sjálfan þig hvort þú sért hissa á því að innlegg þín séu strokuð út.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/1/05 17:01

Ekki ég... það þurkast líka reglulega aftan af innleggjum heiðursgesta... man að einhver var að fagna þúsundasta innleggi (eða tvöþúsundasta) og svo daginn eftir hafði það fækkað niður fyrir það sem verið var að fagna...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/1/05 17:02

Limbri mælti:

Ef þér finnst það skrítið... spurðu sjálfan þig hvort þú sért hissa á því að innlegg þín séu strokuð út.

-

...og jú, þetta var rétta svarið...

GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 22/1/05 18:45

Mikið varstu duglegur núna. ‹Réttir Skabba litabók og tússliti í verðlaun›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/1/05 18:48

Jibbí... það var alltaf í uppáhaldi hjá mér sem krakka... ‹byrjar að lita›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 22/1/05 21:19

Ég er svo aldeilis rasandi bit. Ég er löngu hættur að nenna að lesa allt, sem skrifað er hér á Gestapó.

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 23/1/05 10:40

Skabbi minn... annað hvort ertu atvinnulaus eða lasinn ‹mundar sig við að búa til broskarl úr semikommu og lokuðum sviga en man þá allt í einu eftir því að það er forboðið og getur orsakað brottvísun...hættir við›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 23/1/05 13:10

Nafni mælti:

Skabbi, Skabbi skabbi skabbi....................‹lyftir fingri ávítandi, en dettur bara ekkert nógu ávítandi í hug..........›

Meinarðu ekki ákavítandi?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/1/05 13:26

Þar sem ég er í afneitun varðandi Baggalútsfíkn mína, ætla ég að loka þessum þræði og gleyma honum strax...

LOKAÐ
        1, 2
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: