Gefur Frelsishetjunni stóran skammarhatt en leyfir honum sjálfum að velja lit á hann
Gefur Frelsishetjunni stóran skammarhatt en leyfir honum sjálfum að velja lit á hann
Tekur fram fyrir hendurnar á máltíðinni og réttir Frella bleikan tossahatt
Gefur Frelsishetjunni stóran skammarhatt en leyfir honum sjálfum að velja lit á hann
Tekur fram fyrir hendurnar á máltíðinni og réttir Frella bleikan tossahatt
Svei attann þá gef ég honum bara rauðar stjörnur á hattinn
Tákna þessar stjörnur að ég hafi verið góður strákur?
Já þú færð eina fyrir hvert kurteisislegt tilsvar sem þú kemur með
ég verð víst bara að húka hér, ófrumleg og óspennandi sem ég er. andvarpar og veltir fyrir sér möguleikum heima sem eingöngu innihalda nornir
Mér finnst að Júlía eigi að vera hér!
Andskotinn þarf maður nú að fara að borga skatta fyrir að hýsa þennan óþveralýð? Réttast væri að flengja hyskið til hlýðni, það var gert í mínu ungdæmi.
Setur sjálfa sig í skammarkrókinn fyrir ósæmilegar aðfarir á salerni Baggalútíu þann 9. þessa mánaðar
Tekur með fartölvuna sína svo henni leiðist ekki
Leggst uppí sófa og hefur það gott
Ég býst við að þú hafir komið með þennan sófa sjálf? klórar sér í höfðinu Ég nennti sko ekki að innrétta... en þetta getur svosem orðið þægilegasta afdrep ef maður flikkar aðeins upp á þetta. Horfir íhugul í kringum sig
Já, ég skrapp í habitat áðan og lét sendibílstjórann bara skutla sófanum hingað, ansi þægilegur. Hérna er ágætt að vera og rólegt. Þú þyrftir bara að bjóða uppá einhverjar veitingar, þá værirðu komin í samkeppni við Kaffi Blút.
Kemur inn og sér að allt er vaðandi í þægindum eins og á hóteliHvur fjandinn er þetta? Haldið þið að þetta sé eitthvað hótel? Fer með galdraþulu og gerir tákn með höndunum og allt draslið hverfur.Þetta er skammarkrókur og skal vera nýttur sem slíkur. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Plompar á rassinn þegar sófinn hverfur. Tekur eftir að fartölvan er horfin úr kjöltunni
Jæja, hérna nenni ég ekki að hanga lengur.
Fer
hmm... það er kannski rétt að fólki á ekki að þykja of gaman í skammarkróknum. En það hefði samt getað orðið kósí hérna.
Raular lagstúf
Drulla, lortur og skita.
Afhendir stjörnurnar þrjár.
Verð að passa mannorð mitt.
lokar fyrir vatn og rafmagn
ákveður að skammarkrókurinn verði nýttur til undirbúnings fyrir ísrandarsund litlunornar sem haldið verður í apríl, setur upp ákveðnissvip, reynir að láta glamrið í tönnunum ekki heyrast