Blótar herfilega og rífur hár sitt fyrir að láta Stelpið plata sig og tæla
Brosir fallega til Máltíðarinnar og vinkar henni bless í tugthúsið. Fer á barinn og afgreiðir sig sjálf um kóbaltbláan kokteil með regnhlíf og sítrónusneið
Brosir tilbaka en huxar um hvernig eigi að falsa kóbalt
Ég bara spyr þarf falsað kóbalt til þess að gera fals pening?
Er hægt að fá máltíð fyrir tvo hérna? heyrir hvernig viðstaddir veltast um af hlátri ég er alveg að fara á kostum í þessum orðaleikjum
Strunsar inn með risa stórt kjötstykki, skellir því á borðið og byrjar að háma í sig og skolar niður með Ákavíti
trítlar inn með boðsmiða í heilsulindina, dreifir þeim um staðinn. pantar sér kóbaltkaffi, skolar því niður með blút og bíður eftir félagsskap
Lítur upp frá kjötinu og horfir í átt að Litlunorn Ertu svöng ? Þú mátt fá þér með mér ef þú vilt.
namminamm! þakka gott boð. sest niður og fær sér stóran bita
Stendur upp og nær í Ákavíti handa sér og Litlunorn
Hérna þetta er ómissandi með.
Rekur nefið inn í dyragættina
Mikið óskaplega er þetta góð lykt. Hvernig kjöt er þetta stelpur mínar?
Rænir Smábagga og stingur honum í stóran pott Stelpur ætlið þið að hjálpa mér að elda þetta stóra kjöt stykki ?
Heyrðu, ég er ekkert svín lengur! Stígur upp úr pottinum, tekur hann með sér fyrir Núðluna og flýr
Horfir á eftir Smábagga með söknuði og sleikir út um
Skellir í sig Ákavíti og fer heim