Afsakið - áramótin voru víst talin mikilvægari en Baggalútur Tekur lyfin sín
Ein auðveld í tilefni af því...
"Móðir þín át hundinn minn..."
Það er auðvitað svívirða að láta Baggalút sitja á hakanum. En hvað með það; er þetta What's Eating Gilbert Grape?
Hvorugt er rétt - en myndin er frá svipuðum tíma og Gilbert Grape.
Next Friday? Hef reyndar ekki séð myndina...
Í hvaða kategóríu fellur myndin? Er þetta einhver krakkamynd eða kannski bara eitthvað listrænt t.d. The Cook, The Wife etc.. eða bara kannski eitthvað svona campy-kitsch t.d. eftir John Waters?
Frjádagur er það nú ekki.
Þetta er langt frá því að vera hefðbundin mynd og því gef ég ekki upp flokkinn strax hlær eins og bavíani.
Þetta er svona lítil, ódýr mynd með óþekktum leikurum sem var ekki gerð nálægt Hollywood - en flestir ættu þó að kannast við leikstjórann...
Fyrst enginn virðist vera með lágmenninguna á hreinu:
Leikstjórinn hefur unnið til óskarsverðlauna...
Er þetta eftir Peter Jackson?
Brain dead?
Auðvitað...
Og á frummálinu:
P:"Your mother ate my dog!"
L [heldur uppi skottinu á Schaefer-hundi]: "Not all of it..."
Þarfagreinir á leikinn.
P.s. hvað gerir "Umboðsmaður Pornoklám" annars?
Þetta er held ég annars eina myndin eftir Peter Jackson sem ég hef ekki séð. Þarf að bæta úr því sem fyrst.
Ekki veit ég hvað umboðsmaður Pornóklám gerir. Hljómar dónalega.
En nóg um slíkt. Hér er næsti frasi: 'Ég hef verið mjög einmanna í mínum einangraða turni óskiljanlegs tals.'
Já, góður Hilmar, góður. Rétt í fyrsta.
Frasa, já?
"Mér líkar betur við reyk en loft. Ég myndi reykja í svefni ef ég gæti það."
Kunnuglegt ... mjög kunnuglegt.
Er þetta nokkuð The Usual Suspects?