Sínum fínum sementspokum
sitja ítalir á
bíða þægir í austfjarða þokum
þeir uns kínverja fá.
Fáar vísur fínar kveð
fipast oftast hagur
Gramt er orðið margra geð
gremst þeim stirður bragur
Brag um lífið ljúfa kveð
og lindir fjalla tærar,
randaflugur, blómabeð
og ... BOMBurnar háværar!
Háværar þær berast mér
handan veggs og þilja
hvað er eilla á seyði hér?
móðir, hjálp mér að skilja
Sneiði hjá bragleysu Melkorks. Ef Melurinn vill þá er gott að kynna sér: [url]www.rimur.is [/url]og www.heimskringla.net
Værar eru vergjarnar
vinkonur mínar
bærilega bólgjarnar,
BÚMM-þyrstar, fínar.[/s]
Fínar eru fríðleiks meyjar
að fara með í bólið
Eigra samt ekki í eyjar
eða í sörlaskjólið
Sörlaskjólið skemmir allt
skammt er þess að bíða
Núa mun í sárið salt
sársauka mun líða
hmmmm.......
líða mun mér betur nú
mikið er það gott
síðan þá til vinstri snú
setjum það í pott
[ekki batnar það...]
Pottormur í pjöllu stakk
phallus einum vænum
Tók í henni eitt flikk flakk,
fljótastur í bænum!
Bænum brátt í kveikjum
brennum gamla árið
fýlu burtu feykjum
'fílum' brunafárið
Brunafárið vinsælt var
Vladimíra gladdi
tónlist samdi, tók af skar
tróð í vör og kvaddi
Kvaddi árla morguns mær,
mögnuð nótt að baki.
Sá hana á Gauk í gær,
ganga sveipta laki.
Laki mínu lak í nótt
líkjör eðalgóður.
Á af honum gríðar gnótt
grunnlaus lífæðsfóður Brestur í óstöðvandi grát, hann fer svo mikið til spillis
Fóðra ek með flösku maga
furðu það sætir
Hve lítið þessi baldna baga
bros ykkar bætir
Bætir þessi baga glott
baldinn Halli stynur.
Nafni eigðu næs og gott
nýjar kæri vinur.
Vinur minn með vísu kvað
vildarkveðju flutti
Aldur fyrir öllum bað
allra besti gutti
Bæta ætla braga gnót
bögu litla og fríða,
bráðum kemur nýárs nótt
nálgast árið blíða.
Alltof seinn,
Gutti er allveg gassalegur
gengur trautt sinn veg
hann á jólum álfalegur
át allveg över seg.
Smávegis flámælska .,