Lamaze? Vona að fæðingin hafi gengið vel.
Takk fyrir. Rétt öndun virðist hjálpa mér að þola magakvalir betur. Ekki kom nú barnið, þó ég sé orðinn ófrískur.
Mér mistókst að halda niðri matnum og fékk ælupest í nótt með tilheyrandi splatter og viðbjóði. Veikindin hafa sjatnað en ég missti þó af veglegu jólaboði, fjandans vitleysa.
Bezt að skemma ekki þráðinn með einhverju rugli. Yfirgefur þráðinn
Reyna að vinna upp allt ólesið efni sem hefur hlaðist á lútinn minn yfir hátíðarnar. Svo að púsla smá og kannski sofa, svona um síðir. Saknar Nornarinnar
Er að fara að tefla við páfann, finn það á mér að þetta verður einvígi aldarinnar.
Skákinni verður ekki lýst beint en úrslit verða gerða almenn þegar líður á næsta ár.
að fara að skoða púslið hjá Hexíu
Saknar Nornarinnar
Knúsar samstarfsfélaga sinn Ooo... þú ert svo mikið krútt Hexía mín
Ljómar upp
Nú er ég vöknuð og ætla að fara að vinna eftir svona klukkutíma eða svo....
Reyna að vakna almennilega. Ótrúlegt hvað hægt er að komast nálægt því að snúa sólarhringnum við í örstuttu jólafríi.
Er að reyna að halda mér vakandi og þannig snúa sólarhringnum til baka. Hvað er betra til þess en að hanga hér á Baggalút. Eftir hádegi ætla ég svo að búa til Ákavíti til að eiga um áramótin mmm.... Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ahdla að lahga hina nögglina, gafst ekki tími til þess yfir jólin.
Að fara út..
Sofa!