Geri það fyrst þú lofar sól og hita....
Lofa líka að fá bilaðann bíl lánaðann... vorum við ekki búin að sammælast um það?
Blikkar Limbra
Hvað heldurðu að konan þín segi???
flissar óstjórnlega
Það er ennþá vetur úti, vonandi fer þessu að linna.
snjór JIBBÍ!!!!
rigning, bjakk!
Veðrið er gott eins og er (hægviðri og hiti yfir frostmarki) en oss grunar að þar sé um að ræða lognið á undan storminum. Það mun vera von á óveðri og grunar oss að það gæti skollið mjög snögglega á innan mjög fárra klukkustunda.
Sá grunur er líklega réttur hjá þér Vlad. Þess vegna hef ég vaðið fyrir neðan mig og mun skjóta flugeldum innandyra í kvöld.
Veðrið er ekki komið í Kópavog. Kannski fer það bara framhjá.
Starir þegjandi út í loftið
Fiktar í veðurmaskínunni. Reynir að skrúfa fyrir plasmalekann.
Veðurhorfur næsta sólarhring á norðurlandi eystra: Austlæg átt, 5-13 m/s og snjókoma eða slydda með köflum. Gengur í norðvestan 18-23 með snjókomu og skafrenningi eftir miðnætti. Lægir lítið eitt seint í nótt, norðvestan 13-20 og snjókoma eða él á morgun. Hiti kringum frostmark, en 2 til 6 stiga frost á morgun.
Spáin er fín á norðlenskann mælikvarða!!
Veðrið er fínt. Hverjum er ekki annars sama um veðrið, ef það er verulega slæmt, þeim mun betri ástæða til að hanga á Baggalúti.
Hvar er helvítis fárviðrið sem vitleysingarnir spáðu hér á höfuðborgarsvæðinu í kvöld? Það standa óbrunnar brennur vegna duttlunga einhverra veðurfræðinga!
Það var reyndar hið versta veður um kvöldmatarleytið, a.m.k. þar sem vér vorum. En eigi stóð það mjög lengi.
Nei, einmitt sláandi gott veður í nótt! Og reyndar í dag. Mér þykir það merkilegt.
Hefur einhver séð Hakuchi nýlega?