Á fréttaritinu swissinfo.com kemur það fram að fyrrverandi svissnezkur diplómati er bara nokkuð bjartsýnn á framtíð þessa magnaða konungdæmi. Stjórnsýsla landsins hefur legið í lamasessi síðan í Maóistabyltingunni fyrir átta árum síðan.
Það hefur ekki farið mikið fyrir umræðum um framtíð Nepal hér á landi og er það miður. Baggalútsmenn gætu tekið forystu í þessu efni hér á landi og ungir námsmenn gætu sérhæft sig í málefnum Nepal og grætt á því formúgu.
Er rétt að ráðast inn í landið og steypa konungdæminu?
Hvað gerist ef kommúnistar ná völdum?
Hvað er maður lengi að ganga upp á Everest?
Ef við eigum að gerast sérfræðingar í Nepal held ég að við þurfum í fyrsta lagi að breyta nafninu í Ópal. Það er heimilislegra.
Og ef ég á að svara spurningum þínum í réttri röð:
Já! Það bætir, hressir og kætir.
Kommúnistar ná ekki völdum.
Það fer eftir því hvenær þú leggur af stað.
Á fréttaritinu swissinfo.com kemur það fram að fyrrverandi svissnezkur diplómati er bara nokkuð bjartsýnn á framtíð þessa magnaða konungdæmi. Stjórnsýsla landsins hefur legið í lamasessi síðan í Maóistabyltingunni fyrir átta árum síðan.
Það hefur ekki farið mikið fyrir umræðum um framtíð Nepal hér á landi og er það miður. Baggalútsmenn gætu tekið forystu í þessu efni hér á landi og ungir námsmenn gætu sérhæft sig í málefnum Nepal og grætt á því formúgu.
Er rétt að ráðast inn í landið og steypa konungdæminu?
Hvað gerist ef kommúnistar ná völdum?
Hvað er maður lengi að ganga upp á Everest?
Sko. Nepal er undir stjórn Baggalútíu, svo jeg skil ekki pælinguna alveg.
Og Everest er bara hóll. Ekkert á við Baggahryggi!
Ekki finnst mér heldur mikið til Everest koma. Ég elska Matterhorn.
Hvað gerist ef kommúnistar ná völdum?
Þá mun rísa upp nýr dýrðartími í sögu Nepal sem mun vonandi vara til endaloka alheimsins.
Næstu spurningu, takk!
Mjer skilst að hann hafi dáið úr hárri elli. Varasamur vírus það!
'53 ef minnið er ekki að bregðast.
Og ég sem hélt að Nepal væri fyrirtæki í Borgarnesi
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
OPAL fyrirtækið í Zurich í Sviss sérhæfir sig í tæknilegum lausnum fyrir farsíma. Þetta er mjög vinalegt fyrirtæki og aldrei að vita að það fjárfesti í Baggalútíu einn góðan veðurdag.
Og ég sem hélt að Nepal væri fyrirtæki í Borgarnesi
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það vita nú allir að Tíbet er í Nepal. Ég var að enda við að lesa bókina 7 ár í Tíbet! eftir einhvernklórar sér í höfðinu greinilega kolruglaðan þjóðverja.
Manngreyiið í Borgarnesi allan tímannHrökklast aftur á bak og hrasar við
Mér líst vel á að sérhæfa mig í málefnum Nepals. Ég man bara að fyrir örfáum árum tók krónprinsinn sig til og kálaði sinni nánustu fjölskyldu og þurfti frændi hans, sem var á klósettinu þegar atburðurinn átti sér stað, að taka við öllu klabbinu.
Ef X er maðurinn sem labbar upp Everst í grömmum og T er áætlaður tími(sek) þá er:
T= ((X*H^2)/(P+S+B+D))-(H^2/(S+B))
og getiði nú hvað
P, S, B, H og D er í þessari jöfnu.
(gæti verið skemmtilegt verð eg að sögja)
Þér gleymduð að taka með í reikninginn að loftþrýstingur minnkar með vaxandi hæð.
Sá hinn sami gæti líka lent í biðröð. Það er ekkert grín, það er raunveruleg biðröð á toppinn.