Heggur Davíð hnútinn á,
herran góði þingi á,
svo komist loksins Fisher frá
fangelsi í Asíá?
ASÍ á allra hag,
ætlar að hafa gætur
Hafa á því heljar lag
harðar verða þrætur
Þrætur gerast þungar mjög á þessum tímum
Taka vænan toll af gumum
titring valda ellihrumum.
(Baksneidd braghenda)
Ellihrumum jólafólum fögnum,
ef fennir allt í kaf við verðum glöð.
Jólabörnin svæfum við með sögnum
og snarpheit tökum jólafreyðiböð.
Jóla- freyða flestöll -böð.
Freyðivínið þamb´ af stút.
Jesú Kristur kvaddi gvöð.
Kíkti við á Baggalút.
Baggalútur ból um jól
býr oss, skjól og varma;
alkóhól og skálkaskjól;
skín hér sól á hvarma.
Þetta var glæsilega dýrt kveðið hjá þér, Sjöa.
Hvarmaljósin ljúfu þín
loga bjart í vitund minni.
Ástarminning aldrei dvín
ætíð vert þú mér í sinni.
Ljómar uppHjartkær er kveðja þín og vísa Sundur.
Sinni mínu synda í
sjálfhausaðir fiskar.
Vísast munu valda því
vondir geisladiskar.
Flott vísa, en hér er svar:
Geisladiskarnir snúast,
við hverju má nú búast?
Glymur hátt, hrynur hrátt,
er fólk nú orðið kátt?
Disk á mínum „dulítið“
dautt er jólaketið
Horreim lafð'á helvítið
hokr'í flest er étið
Étið hef ég hangikjöt
og heilsteikt lambalæri.
Etið á mig ótal göt
og úldinn fisk af færi.
Étið hef ég hangikjöt
og heilsteikt lambalæri.
Etið á mig ótal göt
og úldinn fisk af færi.
Afsakið þetta var eg sjálfur. Gleymdi innskráningu.
Færi ykkur kátar kveðjur,
kjötið hangið skal nú snætt.
Léttreikt svín og sósuleðjur,
svangan Manga geta kætt.
Ég kæti mig við kostaboð
Hvenær viltu njóta?
Ástarfundur, vefst í voð.
Viljum nægju hljóta.
Hljóta munum nægju nóg
nær þú vilt mig finna.
Strýk þín læri strýk þinn bóg
stælta galdrakvinna.
Kvinna einskis manns ég er
Einkabúskap stunda.
Gleði vill ég gefa þér,
gætum leitað funda.
Funda skal ég sko með þér
skapanornin glaða
Þú skalt fá þinn fund með mér
þrýstna meyjan graða
Fundinn vil eg fá með þér
fagra nornin mín.
Hvenær, já og hvert sem er,
kæmi ég til þín.