Af hverju var aldrei nein stelpa í spilinu hjá Tinna, bara stráklingar?
Það er sökum þess að Tinni er samkynhneigður einstaklingur, að sögn.
Annars eru Tinnabækur þessar óttalegur kapítalismaáróður. Skömm að þessu bara. Þá bið ég frekar um Red Star. Mun uppbyggilegra efni þar á ferð, þó svo að slíkar skrípasögur séu yfirleitt helst til framsæknar fyrir minn menningarsmekk.
Hananú, er þetta að breytast í þerapískan dulkynvilluþráð? Tinni er kynlaus, eins og annað evrópskt vinsældablek.
Áfram með smjörið.
Hvaða dýr segist Tobbi ekki þola?
Köngulær í Dularfulla stjarnan, eða var það Tobbi sem var svo hræddur við þær.
Ekki var ég að fiska eftir því. Hann talar beint út, enda nóg boðið.
Tobbi þolir ekki köngulær, það er rétt. En segir það ekki berum orðum. Ég er að fiska hér eftir öðru.
Hann var nú ekki besti vinur lamadýranna þegar þeir voru í Perú ...
Það voru lamadýrin sem voru alltaf að spruta framan í Tinna og Kolbein í Fangar í sólhofinu.
Hananú, er þetta að breytast í þerapískan dulkynvilluþráð? Tinni er kynlaus, eins og annað evrópskt vinsældablek.
Áfram með smjörið.
Hitti þetta á viðkvæman blett hjá þér Enter minn og hvað ætlaru að gera við smjörið?
Hann var nú ekki besti vinur lamadýranna þegar þeir voru í Perú ...
Hmm, rétt. Hann virðist raunar ekki mikill dýravinur, við nánari umhugsun. En þessari athugasemd, sem ég er að vitna til, var beint að ákveðnu kvikindi, hvimleiðu mjög.
Nei, þó sá léki hundspottið vissulega grátt hallmælti Tobbi honum ekki.
Úff. Rétt, en þó ekki það sem ég er að leita að.
Hér er Tobbi ekki að vísa til einnar dýrategundar, beint - heldur meira að fárast yfir ákveðnum eiginleika.
Og koma svo - ég er farinn að klára bévítans jólalagið.
Kötturinn tengist þessu, en ekki er verið að vísa til hans.
Ekkert skelfir Milou (Tobba (sic!)) meir en talandi dýr. Talandi um gæludýr, þá á Tintin eitt slíkt í viðbót ( fyrir utan hundinn)....????
Mörgæsin var meira kunningi, bauv. Nei, þessi "vinur" entist reyndar bara í einni bók. Sagði einhver gullfiskur, sagði einhver api, sagði einhver hamstur, sagði einhver páfagaukur, sagði einhver....