Jól um sveinar svalla mjög
svakalega drekka.
Leggja að sínum dauða drög,
dægilegra rekka.
Finnst mér alltaf Fresca best,
fjandans þorstann lagar.
Finnst mér alltaf Fresca best,
fjandans þorstann lagar.
Hundrað lítrar drepa hest
hann að innan nagar
Öðruvísi mér áður brá
engum var ég háður
Öðruvísi mér áður brá
engum var ég háður,
eins og róni upp á rá
rævilslegur snjáður.
Vingull er á veiðum
vælir um miðja nátt,
Vingull er á veiðum
vælir um miðja nátt.
Rytjulegur reið um
og reyndi að fá drátt.
Undir rofabarði bjó
bóhemið og drakk
Undi rofa barði bjó
bóhemið og drakk,
þambaði fulla flösku
fullur dó og sprakk.
+
Svona fór með sjóferð þá
stanslaust fullur er,
Svona fór með sjóferð þá
stanslaust fullur er,
útá sjó hann eigi má
aftur fara ber
Drekka skal nú dropana
drepast svo og æla
Drekka skal nú dropana
drepast svo og æla
Teygja larfa lopana
leggjast niður, pæla
Er'á jörðu vitsins vera?
Verður okkur bjargað?
Er'á jörðu vitsins vera?
Verður okkur bjargað?
syndir ei mun aftur gera
okkur verður fargað
Endalokin óttumst við
óðum vargöld nálgast
Endalokin óttumst við
óðum vargöld nálgast
Víddir heimsins gefa grið
glatt þó munum sálgast
Engin veit hvað verður þá
er víddir tak'að minnka
Engin veit hvað verður þá
er víddir tak'að minnka
Í dularfulla föllum dá
draugar kollum kinnka
Endalaus var hennar eymd
allar bjargir bannaðar
Endalaus var hennar eymd
allar bjargir bannaðar.
Hún var geymd en ekki gleymd
geymslur hennar kannaðar.
Kókaín í kjallaranum
kerla átti.
Kókaín í kjallaranum
kerla átti.
Brennivín í blandaranum
blanda mátti.
Heróín í hátölurum
hyskið geymdi
Heróín í hátölurum
hyskið geymdi.
Um kaldan bjór í rafmagnsrörum
Rósu dreymdi.
Manstu Samband, manstu KRON,
manstu vinstri umferð?
Manstu Samband, manstu KRON,
manstu vinstri umferð?
Ég man Baug og ég man SPRON,
ég man DVD frumgerð.
Áður átti ég engan aur,
ári er ég nú fjáður
Áður átti ég engan aur,
ári er ég nú fjáður.
Ég er penings púka maur
pervisinn og þjáður.
Undir fótinn leggjum land
læðumst út í myrkrið
Áður átti ég engan aur,
ári er ég nú fjáður
Þekkti ekki Giljagaur
gallaður og hrjáður
of seinn....
Undir fótinn leggjum land
læðumst út í myrkrið
Étum sót og borðum sand
sítum ekki hokrið
Undarlega mér innanbrjósts
alla daga líður
Undarlega mér innanbrjósts
alla daga líður.
Mun nú vera morgunljóst
að mat þinn ei þú sýður.
Það mun vera vandasamt
veislu góða að gjöra.
Meðan Grettir sæinn svam
sat hann Atli heima.
Gæinn fíla virtist Wham
villtu ketti breima.
Vektu mig er veg þú gengur
vil ég síður hanga einn.