Lygnt streymir Lagarfljótið
og lýtur jöklanna makt.
Á ströndinni stirnir á grjótið,
“Stille Nacht, Heilige Nacht.”
Hann er óttalegur Kjáni
tekur hugmyndir að láni
höndin ljót
hún steypir í mót
Der gott ist Tot
Lemur lendur allar
lon og don
beiskur búskur kallar
"bring'em on"
Hver kann hvar í sundur skilja
hvenær þunnt og hvenær þykkt.
Um konur vita hvað þær vilja
das weiss ich nicht.
A, b, c, d,
e, f, g.
Eftir kemur?
Que est ce que ce est?
(Les: Kess-ku-se)
L, m, n
og einnig pé
og ættleidd kýr
She loves me, yeah!
Fellur vinafjöldinn senn
flýja allir vænir menn.
Sína pligt þó stendur enn
min gode ven.
Stólpakúnni standa hjá
stafir sem hér nefna má:
R S T & U & V.
Staff only / Only staff.
Allt stafrófið
er svo læst
endar þófið
Jesus Christ!
Gaman á Glaumbar
gleðjist gumar
hlæjum har har
so wunderbar
Ansans klukkan orðin tvö
X Y Z Þ Æ Ö
Passa väl på vår miljö.
Grímur Örn Gustavsen
greindist með þynnku og slen.
Hann lagðist í lostans fen.
Ladies and gentlemen!
Inn læknir lagði
Lalla sem var ga ga
Djöfull dapur sagði:
„Det är inte bra“
Eftir því sem vér best vitum rímar 'bra' ei alveg 100% við 'ga ga' sé framburðurinn réttur en vér látum slíkt liggja milli hluta
Babbi toppar Tobbu Dobb
Tappi poppar opp
Popp er betra en ostapopp
"Obb Bobb - bobb bobb bobb..."
Spenntur ég útí glugga gæ,
gjafir ég hvort í skóinn fæ.
Sveinar nú ark´um borg & bæ;
"Better Watch Out, Better Not Cry".
Í Danaveldi er dásamlegt,
Danir líka mér.
Ég elska Dani og allt það slekt
og flæskesteg med svær.
Ítalía er ágætt land
allt er þar í fína.
Alltaf má fá bjór og bland
una birra a la spina.