Innan tíðar lifnar ljós
lengjast blíðar stundir.
Vaknar síðar vorsins rós
víð´um fríðar grundir.
Dimmt er oft í desember,
drunginn loftið fyllir.
Dimmt er oft í desember,
drunginn loftið fyllir.
Tíkin stropt, í tækið fer
taumlaus softpornhryllir.
[Sögnin að stropa, er notuð um egg sem tekin eru að klekjast, en einnig er talað um að það sé farið að stropa hjá einhverjum, les. einhver á von á barni - sennilega hefði þetta þá átt að vera tíkin (konan) stropuð - en skítt með það!]
Þessi fannst mér lúaleg
ljóta ansans bullið!
Þessi fannst mér lúaleg
ljóta ansans bullið!
snjallir dans'og snúa veg
snöggt í fansí gullið
Eitur snjall er Enter hér
að öskr'í gjallarhornið
Eitur snjall er Enter hér
að öskr'í gjallarhornið
hræðir alla, hreykir sér
og hristir ballarkornið
vaskir piltar varpa hingað
villtum, spilltum kvæðum
Miltisbrandur mikið böl
mesti fjandi hrossa
þekkur vandi þeirri kvöl
að þiggja gand í bossa
líður tími, tifa vísar
taka símar breytingum
líður tími, tifa vísar
taka símar breytingum
Síður ríma bögu bísar
bæt'á grímu skreitingum
Alstaðar um allan heim
argir kallar garga
Alstaðar um allan heim
argir kallar garga
ef að skín í skalla þeim
þeir skynog mjalla farga
hvítur pappír, penni, blóð
portvínstappi, vindlaglóð
Hvítur pappír, penni, blóð
portvínstappi, vindlaglóð
Rímna kappi, kveðju tróð
karl á vapp'um ljóðaslóð
Ansi hreint er Kára kalt
kemur seint til dyra
Ansi hreint er Kára kalt
kemur seint til dyra
Hríðin beint þó hretið svalt
hrifið greint þann byra
Engin kallar ömmu nú
Engihjallagengið
Engin kallar ömmu nú
Engihjallagengið
Lengi hallast hér að trú:
hengið alla og flengið
Hér er jetið jólaket
Jesús, Pétur, María!
Hér er jetið jólaket
Jesús, Pétur, María!
Svo í leti legið get;
lagið freta; þa'r í A!
Best að reyna að rita líka,
römm er meining vísu.
Það er grín og gamanmál
að gefa vín í skóinn
eða svín og saumanál,
sængurlín og skarfakál.
Enginn maður megnar það,
meira þvaður hlusta á.
Enginn maður megnar það,
meira þvaður hlusta á.
Samt ég glaður geng af stað
glápi staður hér á skjá
Enn við skjáinn eru ljóð
enn þá skána stökur
Enn við skjáinn eru ljóð
enn þá skána stökur.
Út í bláinn blínir þjóð.
Borðar páfinn kökur?
Viltu ekki, vina mín,
veita rekka greiða?
Uni sæti unir sér
undir strætisvagni.
Uni vætir voðir hér,
vant er næturgagni
Viltu glápa imbann á
eins og sápa í framan?
Viltu glápa imbann á
eins og sápa í framan?
eða rápa út á krá,
erþað snápa gaman.
Það er gott að gleðja lund
ganga spotta úti
Það er gott að gleðja lund
ganga spotta úti.
Held svo brott að hanga stund
með hæðnisglott á lúti.
Sinadráttinn sit ég með,
segir fátt af einum.
Sinadráttinn sit ég með,
segir fátt af einum;
öngvan mátt & öngvan freð,
öngva sátt í beinum.
Bezt mun því að svíf´í svefn,
svol´dinn kríublundinn.