-Fær Skabbi sérstakan harðandisk innan Baggalúts í tilefni áfangans, eða þykir ástæða til þess að koma honum fyrir á sérstökum server?
Er engin að átta sig á því að Skabbi er að halda upp á 1000ára(innljeggja) afmæli.
Skabbi minn: Til hamingju og drekktu eins og þú villt.
Jú, er að halda upp á þúsöldina, ég strengdi þess þó heit þegar ég fór yfir þúsund að fara að draga úr innlögnum á þetta spjallborð, það virðist hafa haft öfug áhrif og hef ég sjaldan skrifað meira...maður ætti kannski að skella sér í afvötnun...
hlewagastiR, ertu að saka mig um áfengisbindindi!?!? Af öllum þínum fúkyrðaflaumi og safni hef ég aldrei orðið vitni að öðrum eins dónalegheitum.
Vei þér, hlewagastiR, vei þér
hoppar af reiði
Af hverju í ósköpunum þurfið þið svo oft að tengja víndrykkju við eitthvað slæmt. Þetta er ekki einu sinni ofdrykkja, þetta er alveg passlegt magn. Hver og einn lútsmaður er fullfær um að vera brotaþoli, afbrotamaður, ákærandi, dómari og böðull í sínu eigin drykkjumáli. Engin utanaðkomandi aðstoð er nauðsynleg né eftirsótt. Mæli ég svo fyrir að hver og einn lyfti svo glasi og skáli við mig fyrir heilsu og heillindum allra lúta.
Lyftir freyðivín-glasi sínu og brosir eins og nunna á hnakklausu hjóli
-
takk takk, en það sést glögglega að ég er undir áhrifum á myndinni!
hlewagastiR, ertu að saka mig um áfengisbindindi!?!? Af öllum þínum fúkyrðaflaumi og safni hef ég aldrei orðið vitni að öðrum eins dónalegheitum.
Vei þér, hlewagastiR, vei þér
hoppar af reiði
Æ, fyrirgefðu, góði maður. Svona nokkuð gerist þegar maður tekur feil á notandanum og notandamyndinni. Skelfing get ég verið vitlaus. þylur 12 Maríubænir í yfirbótarskyni
Mér sýnist þetta sanna að öl er annar maður