Þegar undirritaður las skrif hr. Fuckovs á þessum vefi fannst mér ég kannast við stíl ritsmíðanna. Lagðist ég þá í rannsóknir og hef komist að stórkostlegri niðurstöðu. dregur fram þykka möppu og opnar hana
Sá sem þið teljið Vladimir Fuckov, rússneskan raunvísindamann, er enginn annar en hinn illræmdi Herr Otto Flick, fyrrverandi foringi í þýsku leinilögreglunni, en seinast sást til þessa manns er hann stakk af til Argentínu vegna utanaðkomandi áhrifa. Sögusagnir hafa gengið um hann og hann hefur sagður vera annað hvort látinn í Andesfjöllunum eða vinnandi sem málaliði fyrir Galtíerí hershöfðingja. Einnig var hann sagður hafa unnið fyrir margar bandarískar stofnanir í kalda stríðinu, m.a. CIA og NASA, þar sem hann gekk undir nafninu Dr. Strangelove vegna sterks þýsks hreims. Lokar möppuni, glottandi út í annað
Nú spyr ég þig herra Fuckov, eða hvað sem þú villt kalla þig: Vannst þú einhvern tímann fyrir amerískar njósnastofnanir, og ef svo er, er þér treystandi fyrir aðgangi að þeim upplýsingum sem hér liggja á næstu grösum.
Hvurn fjandann kemur þetta Nýal, strjarnvísindum eða kóbalti við? Ég skal svara því: Ekkert! Flyst þessi umræða hér með á almennt spjall.
Nú spyr ég þig herra Fuckov, eða hvað sem þú villt kalla þig: Vannst þú einhvern tímann fyrir amerískar njósnastofnanir, og ef svo er, er þér treystandi fyrir aðgangi að þeim upplýsingum sem hér liggja á næstu grösum.
Þekking sú er vér höfum aflað oss á æviferli vorum, hvort sem er hjá amerískum njósnastofnunum eða annarsstaðar, er ástæða þess að oss er vonandi treystandi þó viðurkennast verði að eigi er eðlilegt að það sé alfarið í verkahring vorum að segja til um slíkt. Það er eigi þægileg tilhugsun ef einhver sem ekkert kann með upplýsingarnar að fara kemst í þær. Ímyndið yður t.d. hvað hægt væri að gera með elipton vegna þekkingarleysis.
PS Vér höfum rökstuddan grun um að Núsi McNuus sé dulnefni án þess þó að vera með því endilega að gruna yður um eitthvað gruggugt.
Ég er svoleiðis aldeilis hissa... Ja nú er ég sko hissa!
Ich bin Herr Otto Flick. Herr Vladimir Fuckov is nicht Herr Flick, er ist nur Herr Vladimir Fuckov.
Ich bin Herr Otto Flick. Herr Vladimir Fuckov is nicht Herr Flick, er ist nur Herr Vladimir Fuckov.
Ég mæli sterklega með því að þér hættið þessari vitleysu, því auðvitað vita allir að Otto Flick talar ágætis ensku,
Unleash your hair, Helga.
og les greinilega íslensku, og ætti því að geta dratthalast til þess að rita í Gestapó á íslensku, enda kynntur til sögunnar sem "Herr Otto Flick of the Gestapó". Er því ljóst að Herr Flick ætti nú að minnsta kosti að geta ritað á opinberu tungumáli Gestapó.
Tekið skal fram að undirritaður telur mjög líklegt að Richard Gibson kunni ekki stakt orð í málinu, enda ólæs og heyrnarvilltur þegar síðast heyrðist til hans. Einnig er harla ólíklegt að hann hafi nokkurn tíma komið til Nouvion.
Hei, já hvað ætli hafi orðið af Richard Gibson. Best að athuga imdb.
Hann hefur greinilega ekki gert nokkurn skapaðan hlut. En hann er fæddurí Úganda. Alveg eins og Idi Amin.