Hvað er málið með þetta menjasafn? Svo virðist sem Hugi.is sé að hýsa menjar Bagglýtinga... Hvað er málið og afhverju hafði ég aldrei séð þetta myndband áður.
Er þetta fölsun sem hugadýrin hafa sett af stað eða eru töpuð verðmæti okkar menningar??
http://static.hugi.is/misc/movies/AframIsland1500.wmv
Eru til fleiri myndbönd?
Mun menjasafnið hýsa þetta allt og hvenær kemst það á laggirnar!?
Verður sótreiður og stappar hófum
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hann er greinilega svo mikið illmenni að hann vílar ekki fyrir sér að fara á huga þrátt fyrir að vera kominn yfir 15 ára aldurinn.
Hugi.is er afsprengi einhverra nörda hjá Landssímanum sáluga... þeir eru sko allir komnir yfir 15 ára aldurinn og ég held að ef þeir yrðu allir klofnir í tvennt þá yrðu helmingarnir samt meira en 15 ára...
En nú er menjasafn safn menja, vanalega um eitthvað sem eigi er lengur til, og vegna þess að menjasafnið sjálft er eigi til væri auðvelt að bæta úr þessu og koma upp almennilegu menjasafni með því að láta menjasafnið sjálft vera aðalsýningargrip menjasafnsins er að vísu hefur í för með sér þá óheppilegu hliðarverkun að þar með er menjasafnið eigi lengur eigi til þar eð það inniheldur eitthvað, þ.e.a.s. sjálft sig, og er þar með e.t.v. eigi lengur heppilegt sem sýningargripur á menjasafni.