Tykkum er í dag Frelsari føddur, sum er Kristus, Harrin, í staði Dávids
Ef þetta væri sms þá væri þýðingin svona:
Feitum er í dag frelsari fæddur (mataður), sem er Kristinn Harðar í Reykjavík (staður Davíðs(oddsonar væntanlega) )
amk skildi ég þetta þannig....
Þú ert ansi flínk í þessum SMSum Norn. Ég er nú hrifnari af hugsanaflutning sjálfur. Vesen að hafa mörg tákn í hverjum hnapp...
Eftir grandskodun nidurlenskra fjölmidla hefur ekkert thessu líkt komid í ljós. Líklegast er um ad raeda stadbundid vandamál.
Bölvaðir Færeyjingarnir!
Undir bjálfa- og álappalegu yfirborðinu leynist undirförul náæta er smeygir sér inn um þrengstu smugur og liggur á hleri til að heyra mál fólks. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hygg ég að á meðal vor leynist flugumaður. Eflaust eitthvert afsprengi Færeyings og einhvers annars afkomanda ruslaralýðs er hfur sest að hérna á Lútnum.... Nú, kominn til vits og ára, ákveður helvítið að leka ríkisleyndarmálum í forfeður sína á hólmanum í miðju Atlantshafi...
Leyniþjónusu Baggalúts í málið! Það er líka kominn tími á að taka fram gallana sem hann Vladimir hannaði hér fyrr á árinu.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég hélt að Færeyingar gætu ekki eignast lifandi afkvæmi með mönnum? klórar sér í höfðinu
Nei nei, það eru Norðmenn. Smá misskilningur þarna hjá þér.
Starir þegjandi út í loftið
...og helvískir skutu Albertínu albatros, er illmennsku Færeyinga engin takmörk sett... vildi bara koma þessu að
Setur byssustinginn á riffilinn og ræðst á þorp í Færeyum
Við höfum náð Klakksvík á okkar vald, og höfum í haldi Félaga úr Færeysku hriðjuverkasamtökunum Dauði Albatrosinn.
Setur byssustinginn á riffilinn og ræðst á þorp í Færeyum
Við höfum náð Klakksvík á okkar vald, og höfum í haldi Félaga úr Færeysku hriðjuverkasamtökunum Dauði Albatrosinn.
Láttu þá hafa það óþvegið... Over and Out...
Hleður framhlaðinginn
Ég skal sýna þessum ótalandi heiðingjum hvar Bagglýtingar kaupa ákavítið!
Tekur land á Fuglaey
Nema að á Fuglaey búa aðeins 10 manns svo sigurinn er ekkert merkilegur
Flaggar þjóðfána Baggalúts