Hehe, nei ég held að Winnie skorti eilítið af fágun fyrir Bond. Sé fyrir mér Winnie skalla gjafara í spilavíti fyrir að 'gefa honum röng spil'.
Hvað með að hafa Winnie sem svona henchman? Illur skósveinn er alveg hlutverkið fyrir hann.
Hvað snýr upp Hakuchi? Hvað á þetta nýja útlit að þýða?
Var að horfa á Moonraker í gær á S1. Það er mynd sem þolir ekki að horft sé á hana gagnrýnum augum. Eldur úti í geimnum þegar stjörnustöðin ferst, Bond hittir smáhluti með leiserbyssu þar sem hann ferðast um geiminn og inn í lofthjúpinn (sem hefði átt að brenna hann upp til agna, þar sem hann átti að koma inn undir of þröngu horni, en málið er að það er enginn möguleiki á að gera leiðréttingar á því þegar komið er inn í lofthjúpinn), hlutir höfðu þyngd þó svo það væri sagt að ekkert þyngdarafl væri til staðar og annað í þessum dúr.
Mér persónulega finnst Connery vera Bond. Hann var "deadsexy" í gamla daga og það er varla farið að slá í kallinn ennþá.
Um nýjann Bond vill ég alls ekki tjá mig, það er enginn sem hefur verið nefndur sem er nógu svalur og sexy í þetta hlutverk. Það þarf að vera einhver sem er mátulega hættulegur og sjarmerandi.
Orlando Bloom finnst mér sætur en hann er alltof mikið babyface,
Dylan McDermott er náttúrulega kjörinn í hlutverkið en ég held að enginn hafi minst á hann. Hann er hottý.
En svo er ég náttúrulega bara stelpa og hugsa bara um útlitið á Bond.
Hmm...mér er málið náttla skylt, sko...
Það er auðvitað algert must að Bondinn sé breskur - annars eru þessar myndir - kannski fyrir utan tvær þær fyrstu eða svo - helber hörmung og eyðsla á filmu. Brosnan auk þess arfaslakur leikari (svo fékk ég sko ekki að vera Bondgella í síðustu mynd, er ekki alveg sátt við það).
Held það skipti minnstu máli fyrir gang heimslmálanna hvaða hæfileikalausi hönk hreppir hnossið - væri reyndar til í að fá Sjanna minn bara aftur - hann er mun meira sexý núna en þá...